148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[12:05]
Horfa

Flm. (Þorsteinn B Sæmundsson) (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er hárrétt sem hv. þingmaður segir, peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur tekið ákvarðanir sínar á grundvelli módela sem eru ekki mjög sterk, ekki mjög stöðug, ekki mjög rétt. Hvað varðar það hvort hér sé átt við að húsnæðisliðurinn allur sé tekinn út úr vísitölunni var það rétt og, nota bene, Hagstofa Íslands mælir í mánuði hverjum sex vísitölur og eins og ég sagði í ræðu um daginn sendir Seðlabanka Íslands sem síðan tekur rangar ákvarðanir í vaxtamálum.

Eins og ég sagði áðan er það sjálfstætt vandamál en auðvitað heldur Hagstofan áfram að mæla þennan kostnað, þessa vísitölu með húsnæðiskostnaðinum inni, til að við vitum hvar við stöndum að því leyti þannig að þær upplýsingar liggja fyrir en þær eiga ekki að vera á kostnað heimilanna í landinu.