148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[12:08]
Horfa

Flm. (Þorsteinn B Sæmundsson) (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég veit að í brjósti hv. þm. Óla Björns Kárasonar slær hjarta jafnaðarmanns. Það hefur margoft komið fram í umræðum á þessu þingi, bæði um málefni fatlaðra, öryrkja og aldraðra og svo framvegis. Þess vegna veit ég að hann ber fyrir brjósti hagsmuni þeirra sem hallari fæti standa.

Jú, víst er það áhugavert hjá hv. þingmanni að spyrja um það hvort nær hefði verið að taka út þær hækkanir sem ríkisstjórn hvers tíma dembir yfir um hver áramót. Ég lít hins vegar á það og það kom nú fram í fjárlagaumræðunni að sá uppreikningur sem ríkið stendur fyrir um hver áramót á ýmsum gjöldum ríkissjóðs er í sjálfu sér mjög gamaldags apparat. Ég veit ekki af hverju í ósköpunum ríkið á að ganga á undan með vondu fordæmi um hver áramót og hækka öll aukagjöld ríkisins um einhverjar uppreiknaðar tölur sem einhverjir jólasveinar uppi í fjármálaráðuneytið hafa fundið út í excel-skjalinu. Ég held ekki.