148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[12:16]
Horfa

Flm. (Þorsteinn B Sæmundsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Nú hefur komið fram í viðræðum sem ég hef átt við fulltrúa Hagstofunnar að þeir eru alveg með sitt hlutverk á hreinu. Þeir hafa sagt: Okkar hlutverk er að safna saman upplýsingum í vísitölur. Svo er það ykkar, þ.e. stjórnmálamannanna, að vinna með þær.

Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að ef okkur þykir þessi mæling, þ.e. vísitala án húsnæðisliðar, ekki nógu skýr er í sjálfu sér ekkert mál að fela Hagstofunni að mæla það sem hv. þingmaður leggur til, þ.e. að rekstrarkostnaður húsnæðis, rafmagn, hiti o.s.frv., sé inni. Það kom reyndar eitt fram í orðum hv. þm. Óla Björns Kárasonar áðan, þar erum við reyndar líka ofurseldir því að þar eru inni fasteignagjöld sem sveitarfélög hækka með ársmillibili í einhverja ímyndaða tölu sem menn hafa fundið út þannig að þetta ber að varast aðeins.