148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[12:17]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir að flytja þetta frumvarp. Ég er einn af meðreiðarsveinum hans á þessu frumvarpi og fagna því. Hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson tók fram að langferðir byrjuðu á einu skrefi og lengi hefur verið beðið eftir einhverjum aðgerðum við þann draug sem verðbætur á húsnæði eru og verðbætur yfirleitt.

En mig langar að spyrja þingmanninn, af því að hann hefur flutt hér digrar ræður og lagt fram spurningar til Seðlabankans um stýrivexti. Spila ekki vextir og verðbólga saman varðandi lífeyrissjóðina? Ég mun koma betur að því í seinna andsvari. En spilar þetta ekki allt saman, háir vextir og verðbólga í því samhengi?