vextir og verðtrygging.
Herra forseti. Þetta er mjög áhugaverð spurning. Jú, ég hef haldið því fram í ræðum að stýrivaxtaákvarðanir Seðlabanka Íslands séu verðbólguhvetjandi. Ég byggi það á því að þær vaxtaákvarðanir leggjast af fullum þunga á fyrirtæki landsins sem eiga oft og tíðum ekki annarra kosta völ en að velta þessum sömu ákvörðunum út í verð á sinni þjónustu og varningi sem þýðir að það er verið að búa til verðbólgu. Það er verið að búa til kostnaðarverðbólgu.
Málið er hins vegar að svo virðist sem fjármálakerfið á Íslandi, þar með talinn Seðlabankinn, sé í einhverri hringrás. Það er svolítið eins og hundur sem eltir á sér skottið. Enginn treysti sér til þess að hlaupa út úr þessum hring, annaðhvort með því að lækka vexti, með því að breyta vísitöluákvörðunum eða gera hvort tveggja. (Forseti hringir.) Þetta frumvarp er skref í þá átt að rjúfa þennan vítahring.