148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[12:20]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Flokkur okkar var með það á stefnuskrá sinni í kosningabaráttunni í haust að stefna að því að byggja undir það að lífeyrissjóðirnir sæju sér hag í því að fjárfesta meira erlendis. Nú er ávöxtunarkrafa eiganda lífeyrissjóðanna 3,5%, sem spilar náttúrlega inn í þá háu vexti sem eru í landinu.

Hvenær sér þingmaðurinn fyrir sér að sú vinna gæti hafist, að lífeyrissjóðirnir sæju sér þann kost vænstan að fara að fjárfesta meira erlendis? Þá myndi það lækka ávöxtunarkröfuna og vexti almennt í landinu. Ég veit að þetta er stór spurning.