148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[12:21]
Horfa

Flm. (Þorsteinn B Sæmundsson) (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Jú, þetta er alveg laukrétt hjá hv. þingmanni og Miðflokkurinn hefur sýnt fram á það með mjög gildum rökum að lífeyrissjóðakerfið á Íslandi er hlutfallslega fyrirferðarmeira á hlutabréfamarkaði á Íslandi. Það er viðlíka og ef Norðmenn myndu hleypa olíusjóðnum sínum inn á hlutabréfamarkað í Noregi sem þeim dettur náttúrlega ekki í lifandi hug heldur fjárfestir olíusjóðurinn nær eingöngu utan stranda Noregs. Á nákvæmlega sama hátt mætti eiginlega segja að það væri ákveðin lausn í því fólgin að reka lífeyrissjóðina að heiman, að skylda þá til að fjárfesta erlendis í meira mæli. Nú eiga þeir óhægt um vik, ég viðurkenni það fúslega, en þeir eru þátttakendur í fyrirtækjum á samkeppnismarkaði sem í mörgum tilfellum skekkir samkeppni á Íslandi.