vextir og verðtrygging.
Herra forseti. Ég fagna þessari umræðu og þakka frummælanda fyrir hans yfirgripsmiklu framsögu. Ef ég má nefna það í allri hógværð hef ég sjálfur haft mörg tækifæri á umliðnum árum sem fastagestur á vinsælum útvarpsstöðvum til að fjalla um það málefni sem hér er á dagskrá, þ.e. verðtrygginguna, þó að frumvarpið lúti sérstaklega að einum lið í henni.
Það er af mörgu að taka í þessu efni. Kannski ættum við að byrja á byrjuninni og rifja upp hvernig þetta fyrirkomulag komst á laggirnar í þessu landi.
Árið 1979, þegar hilla fór undir lok þess áratugar sem kenndur er við einn ágætan stjórnmálaflokk sem ég vil síst lasta hérna, Framsóknarflokkinn, höfðum við gengið í gegnum ýmsa efnahagslega erfiðleika. Verðbólgan var mikil hér á landi rétt eins og í umheiminum enda höfðu riðið yfir heiminn tvær olíuverðssprengingar af hálfu samtaka olíuframleiðsluríkja sem menn þekkja undir skammstöfuninni OPEC. Fjórföldun varð á olíuverði í annað skiptið og tvöföldun í hitt skiptið. Það leiddi náttúrlega til mikillar verðbólgu víða um heim og hárra vaxta. Við fórum ekki varhluta af því og menn þekkja að sparifé brann upp og menn urðu að leita annarra leiða til þess að vernda sínar peningalegu eignir, koma þeim helst í fasteignir eða eitthvað slíkt. Það var við slíkar aðstæður sem verðtryggingarkerfið varð almennt hér í landinu.
Áður voru þekkt dæmi um verðtryggð skuldabréf sem gefin höfðu verið út, einkanlega af ríkissjóði o.s.frv. En það sem einkenndi landið á þessum tíma var að hér voru engir fjármálamarkaðir sem gátu með nokkru móti risið undir því heiti. Hlutabréfamarkaður var enginn til, það voru bara þrír ríkisbankar og svo sparisjóðir. Skuldabréfamarkaður var mjög ófullkominn og efnahags- og atvinnulíf landsmanna var með allt öðrum hætti. En það er auðvitað gjörbreytt.
Hér hafa þróast fjármálaviðskipti, risið hafa upp fjölbreytilegar fjármálastofnanir og margir aðilar sem hafa sérhæft sig í ávöxtun eigna eru komnar til skjalanna og menn hafa ýmis færi á að verja eignir sínar gegn verðtryggingu með atbeina fjölbreytilegra fjármálaafurða, sem svo eru stundum kallaðar, og geta notið fjölbreytilegrar, sérhæfðrar þjónustu á þessu sviði.
Meginforsendan sem lá að baki verðtryggingunni var að verja þessar peningalegu eignir er náttúrlega löngu horfin vegna þess að þjóðfélagið er öðruvísi með fjármálamarkaði og öllu því. Í þeirri aðgerð sem þarna var, en eins og menn þekkja gerðist það í lögum sem yfirleitt eru kennd við Ólaf Jóhannesson, sem var forsætisráðherra á þessum tíma, Ólafslögum sem svo eru kölluð, nr. 13/1979 — þau fela í vissum skilningi í sér ákveðna viðurkenningu á því að innviðir þjóðfélagsins voru ófullburða í fjármálalegu tilliti.
Við höfðum ekki fjármálamarkaði. Við höfum ekki þessar fjölbreytilegu fjármálastofnanir. Seðlabankinn hafði enga stefnu í peningamálum sem gæti risið undir því nafni, o.s.frv. Sú nútímahagstjórn sem nú er stunduð var bara til í framtíðinni. Hún var til ekki þá.
Þess vegna er ég að rifja þetta upp, herra forseti, að svo sérkennilegt er hvað þetta kerfi, sem er sett upp við allt aðrar þjóðfélagslegar aðstæður en við búum við núna, allt annað skipulag í efnahags- og atvinnumálum en við búum við, skuli hafa grafið sig svona djúpt að það er eins og að ætla sér að klífa þrítugan hamarinn að reyna að hrófla við því. Hér er gerð ein tilraun af hv. flutningsmanni og meðflytjendum hans til að taka á einum þætti í verðtryggingarkerfinu, sem er húsnæðisliðurinn. Ég ætla nú að fjalla um þann þátt í nokkrum orðum.
Við mælingar á verðlagi víða um heim er ástundað að meta húsnæðið sem einn lið, þ.e. notkun á húsnæði. Það er engin samræmd formúla til um það. Þó að menn hafi á vettvangi hagstofa haft mikið samstarf sín á milli, og þar á meðal er Eurostat, hagstofa Evrópusambandsins, hefur ekki tekist að búa til formúlu sem menn eru almennt sammála um í þessum efnum. En við erum hér með alveg sérhannaða útgáfu. Hún er þannig að þau vandamál sem við höfum átt við að etja í húsnæðismálum með ónógu framboði af húsnæði, sem stafar af ýmsum ástæðum eins og menn þekkja, þar á meðal stefnu mikilvægra og stórra sveitarfélaga í lóðamálum, rata inn í þennan húsnæðislið. Og þessi vandamál hafa verðhækkanir í för með sér. Þau rata inn í húsnæðisliðinn. Húsnæðisliðurinn hefur á undanförnum misserum hækkað svo mikið og vegið svo þungt í vísitölunni að þótt almennt verðlag í landinu hafi farið hjaðnandi samkvæmt viðurkenndum mælingum Hagstofu Íslands er þessi liður svo sterkur inni í þessari vísitölu að fólk sem er með verðtryggð lán ætti auðvitað að njóta þessarar þróunar í verðlagsmálum. Nei, liðurinn hækkar vísitöluna að öllu samanlögðu. Ef við reiknum hækkunina ofan á þær tölur sem best eru þekktar um hver fjárhæð útistandandi lána til húsnæðiskaupa er, þá mælist hækkunin í tugum milljarða á ári. Hvað eru tugir milljarða? Hver veit það? Aflaverðmæti þorsks á Íslandsmiðum á einu ári eru tugir milljarða. Þannig að það er fjárhæð sem er bara lögð mekanískt og sjálfvirkt ofan á lán heimilanna. Að sama skapi eignast þessar fjármálastofnanir, hverju nafni sem nefnast, þessar nýju kröfur.
Það rifjar upp fyrir mér, herra forseti, að fyrir jólin var ríkisstjórnin að rækja hér einhver markmið í loftslagsmálum af því að hún er búin gera samning úti í París um loftslagsmál. Liður í því að gæta að loftslaginu er að hækka um 50% eitthvað sem heitir kolefnisgjald sem leggst á bensín og dísil og eitthvað. Gjald á bensíni hækkaði því úr 5,50 kr. á lítrann upp í 8,25 á lítrann.
Bíðum við, hvað þýðir það? Það þýðir hækkun á vísitölunni, að vísu ekki mikla. En þessi lánaflokkur er svo gífurlega stór að jafnvel svona lítil breyting sem mælist í öðrum eða þriðja aukastaf hækkar lán heimilanna um á að giska 500 millj. kr. Það er hálfur milljarður. Að sama skapi hækka kröfur þessara lánastofnana á heimilin um 500 millj. kr. En hvað hafa þessar lánastofnanir unnið til að verðskulda það að þær eignist nýjar kröfur á blásaklaust fólk, heimili upp á 500 milljónir kr.? Og að baki kröfum þessara fjármálastofnana, sem kunna að vera ágætar, er samanlagt afl íslenska réttarkerfisins. Menn þekkja það frá umliðnum árum hvað það afl er mikið og hvaða afleiðingar það getur haft ef fólk getur ekki staðið í skilum. Þannig að þið sjáið af þessu litla dæmi hvað þetta kerfi hefur leiðst út í algjörar og fullkomnar ógöngur.
Menn þekkja þessi sjónarmið. Menn vita þetta. Búið er að ræða þetta svo mikið á opinberum vettvangi. Menn vita að það er ójafnt gefið, að annar aðilinn í samningssambandinu og alltaf sá veikari, lántakinn, gagnvart hinum sterkari, sem er lánveitandinn, tekur á sig alla áhættu af verðbreytingum af hvaða toga sem þær kunna að vera runnar.
Hvað merkir það á íslensku? Það þýðir að lántakinn gefur út kaskótryggingu fyrir stofnunina þess efnis að hvaða breyting sem verður til hækkunar á verðlagi, hvort sem hún er af innlendum toga, erlendum toga, vegna náttúruhamfara, vegna hagstjórnarmistaka, vegna uppskerubrests í Brasilíu, hvað sem er; þá borgar lántakinn kaskótryggingu. Það er alveg sama. Það spyr enginn um það. Og hann borgar líka ef ríkisstjórnin ætlar að fylgja eftir markmiðum sínum í loftslagsmálum. Þannig að það er altrygging sem þessi lántaki, sem er bara venjulegur einstaklingur, heimili, tekur á sig og hann á að borga þessari fjármálastofnun ef eitthvað hreyfist, alveg sama hvað það er mikið eða lítið í áttina til hækkunar í verðlagi, hann skal borga. Það er enginn greinarmunur gerður á því af hvaða toga þessar hækkanir eru.
Hv. þm. Óli Björn Kárason nefndi að það væri kannski rétt að draga út gjaldskrár og skatta, ég býst við að hann hafi átt við óbeina skatta. Það er ágæt ábending og ákaflega góðra gjalda verð. En eins og margoft hefur verið bent á, af hverju skyldi það varða einhverja aðila í samningssambandi um lánsfé hvort einhver hækkar gjaldskrá hjá einhverri opinberri stofnun? Af hverju ætti það að snerta þennan lánasamning og þá um leið alla lánasamninga af því tagi í landinu? Af hverju á það að snerta aðila að lánasamningi ef ríkisstjórnin ákveður að hækka kolefnisgjald eða ef ríkisstjórnin ákveður að hækka bensín eða áfengi og tóbak af því að það vantar einhverja peninga í einhver þörf og góð málefni í landinu? Af hverju á það að skipta einhverju máli fyrir þá aðila sem eiga saman í lánaviðskiptum? Þetta er náttúrlega svo fráleitt. En það er alveg sama hversu oft hefur verið bent á þetta og búið er að benda á þetta aftur og aftur á umliðnum árum.
En það er alveg sama, það eina sem mætir öllum þessum sjónarmiðum sem ég leyfi mér að nefna hérna, þessari misskiptingu á áhættu, þessu fyrirkomulagi er að annar aðili lánasamnings eigi að bæta hinum það upp að skattahækkun verði í landinu, eins og annar aðili lánasamnings eigi að borga skattana fyrir einhvern annan.
Síðan er náttúrlega það sem margoft hefur verið bent á að þessi samningur er í eðli sínu flókinn, hann samanstendur af tveimur samningum. Hann samanstendur af láni sem er sérhannað, eins og við þekkjum, ágætu tilheyrendur, og hins vegar af verðtryggingarfyrirkomulaginu sem er af því tagi sem menn nefna gjarnan afleiðu í fjármálaviðskiptum. Svo er lagt á venjulegt fólk að skilja þetta. Og það ber ábyrgð á þessu með hverju? Með eignum sínum og með sínu aflahæfi því að eru þekkt dæmi um að eignir eru hirtar af fólki og svo á það að borga af tekjum sínum árum saman eftir það.
Herra forseti. Ég hefði gjarnan viljað hafa lengri tíma en ég hlýt að virða hér tímamörk.