vextir og verðtrygging.
Herra forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Það er kannski erfitt að gefa út algildar fullyrðingar um þetta en þó er ekki annað að sjá en að til að mynda fyrir viðskiptabankana sem hafa svokallaðan jákvæðan verðtryggingarjöfnuð — fyrirgefið hvað þetta er vond íslenska, þetta þýðir bara að þau eiga meira af verðtryggðum eignum en þau skulda verðtryggt þannig að hækki vísitalan streyma peningarnir inn til þeirra og hækki vísitalan hækka náttúrlega kröfur þeirra að sama skapi og þetta er alveg fyrirhafnarlaust. Þeir þurfa ekki að gera neitt, þetta bara kemur. Af því að hér er guðfræðimenntaður maður í salnum segi ég: Þetta kemur eins og manna af himnum. [Hlátur í þingsal.]
Síðan er á það að líta að ég held að það megi alveg segja að þetta hafi víðtækari tengingar. Menn segja sem svo: Verðtrygging er eitt, svo geta menn fengið fasta vexti hjá bönkunum, en það er ekki eins og við búum við mikla samkeppni í þessum efnum. Menn læra það í viðskiptafræði og hagfræði á fyrsta misseri að þegar þannig háttar til að kannski eru ekki nema þrír aðilar að meginstofni til sem bjóða tiltekna þjónustu er mönnum kennt að það heitir fákeppni. Menn átta sig fljótt á því að við slíkar aðstæður, jafnvel án þess að það séu nein sérstök formleg samtöl eða samskipti eða samningar, er bara gagnkvæmur skilningur á því hvernig hlutirnir eiga að vera. Kannski hafa bankarnir svo mikinn hag af því að vera með verðtryggð lán að þess mætti geta sér til að þeir hafi verðlagt og haft föstu vextina hærri en svo að fólkið vilji taka þessi lán og flýi þess vegna í hina lægri vexti (Forseti hringir.) sem eru á hinum verðtryggðu lánum.