148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[12:42]
Horfa

Flm. (Þorsteinn B Sæmundsson) (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Ég skynja að við erum samherjar í því máli að vera á móti því óréttlæti sem birtist í því að annar aðili lánasamnings skuli bera alla áhættu af honum en hinn aðilinn, eins og hér kom fram, mokar inn peningum í bílhlössum.

Nú hefur komið fram, eins og hv. þingmaður sagði, að fólk hefur hrakist í að taka verðtryggð lán af því að greiðslubyrðin er lægri. Menn hafa sagt: Það er erfiðara að taka hér lán með föstum vöxtum, óverðtryggðum bankavöxtum, vegna þess að greiðslubyrðin er allt of mikil. Þá er spurningin þessi: Myndast ekki eða gætu ekki myndast við þetta skref, ef stigið verður, þær aðstæður að hægt verði í stað þess að verðbætur bætist við höfuðstól hverju sinni að greiða verðbæturnar upp samhliða vöxtum við hverja afborgun eins og um óverðtryggt lán væri að ræða? Ég tel nokkuð einboðið við lauslega athugun að við þessa breytingu myndi greiðslubyrði lækka. Ég fór í ræðu minni áðan yfir mismuninn á mælingum með húsnæðislið og ekki húsnæðislið sem munaði 50 milljörðum í fyrra. Hvert heimili á landinu munar um á milli 400.000 og 500.000 kr. þannig að mig langar að vita hvort hv. þingmaður sé mér sammála um að með þessu myndist sá möguleiki að við gætum farið að greiða þessi lán niður hraðar og öruggar en fyrr.