vextir og verðtrygging.
Virðulegur forseti. Ég get ekki annað en tekið undir orð hv. þm. Ólafs Ísleifssonar. Almennur lántaki, sem gerir sennilega sinn flóknasta fjármálagerning í lífinu þegar hann kaupir íbúðina sína eða húsið sitt, hefur enga stöðu í þessum samningum. Það er nú það sem hefur verið sjálfstætt vandamál á markaðinum hér á Íslandi, það eru vaxtakjör og það hversu lítt þau bregðast við raunverulegu ástandi á markaði. Við sjáum t.d. raunvaxtaálag íbúðalána, það hafði engin stórkostleg áhrif á þau lán þegar hér varð eitt stykki fjármálahrun. Það urðu náttúrlega miklu minni viðskipti með eignir um tíð en ef það væri einhver eðlileg vaxtamyndun á þessum markaði þá hefðu vaxtakjör gjörbreyst.
Það sem við þurfum að komast í er auðvitað í fyrsta lagi að ná niður vöxtum því að út á það gengur þetta allt saman, að lækka raunvaxtastigið og halda áframhaldandi stöðugleika í efnahagslífinu með lágri verðbólgu. Helsti hagur okkar, það sem bætir kjör heimilanna mest og fyrirtækja sömuleiðis, er að ná niður vöxtum. Það er í takti við eitt af okkar meginstefnumálum í Miðflokknum, að leggja til atlögu við það verkefni. Ég er þess sannfærður um að hér inni eru allir sammála um þetta þó að menn deili á um leiðirnar.
En bara til að ítreka það sem hv. þm. Ólafur Ísleifsson segir: Vísitalan er óskiljanleg. Hún er flókin og hún er ekki lausnin sem við getum lifað með til lengri tíma og sérstaklega ekki með húsnæðisliðinn sem meðhöndlar sérstaklega svæði mjög ójafnt.