vextir og verðtrygging.
Herra forseti. Það er kannski kjarni málsins. Þetta fyrirkomulag er ekki mönnum bjóðandi enda er fólki ekki boðið upp á það annars staðar. Ég hafði tækifæri í hruninu til að hitta fjölda blaðamanna og fréttamanna sem inntu mig eftir þessu sem háskólakennara á þessu sviði. Mér er ákaflega minnisstæður mjög þekktur þýskur blaðamaður. Hann sagði: Ef þetta væri svona heima hjá mér, að allir höfuðstólar á íbúðalánum okkar hefðu hækkað um 50% — það væri bara götuvígi. Skömmu síðar hitti ég hollenska blaða- og fréttakonu og hún viðhafði áþekk ummæli.
Þetta yrði hvergi liðið nema hér. Það er náttúrlega hörmulegt til þess að hugsa að fólki skyldi boðið upp á að fara í gegnum hrunið með þeim hætti sem raunin var, að höfuðstólar lánanna voru hækkaðir með þessum hætti. Þetta kerfi er auðvitað vel þekkt en menn nota það ekki af því að þeir vilja það ekki, af því að þeir telja það ekki boðlegt.
Ég minntist á það í ræðu minni fyrr í umræðunni að auðvitað fylgdust ýmsir með okkur og myndu verða fljótir að taka upp fjármálasnilld okkar ef hún birtist hér. En það sem við höfum að bjóða umheiminum er þetta. Það er enginn kaupandi að þessari vöru. Fyrir utan það að við eigum 30.000 manns í útlöndum. Eigum við að bjóða það fólk velkomið heim í ískaldan náðarfaðm verðtryggingarinnar? Hversu eftirsóknarvert er það?