vextir og verðtrygging.
Virðulegur forseti. Ég tek bara undir orð hv. þm. Ólafs Ísleifssonar: Þetta er pakki sem enginn er að kaupa annars staðar. Við verðum að finna leiðir út úr þessu og við þurfum að einhenda okkur í það. Ég hef sömu reynslu af því að reyna að útskýra þetta fína kerfi okkar fyrir erlendum vinum mínum og maður auðvitað hættir því mjög fljótlega. Einhvern tímann var maður að baksa við það og útskýra fyrir þeim reikningsskilin sem tóku á þessu, maður hætti því fljótlega. Ég vona að maður geti fljótlega hætt að útskýra þetta illútskýranlega mál fyrir erlendum kollegum og vinum.
Ég held að það sem þurfi að gerast og menn verði að átta sig á er að fjárfestar munu alveg hafa það ágætt utan búbblunnar, komnir undan hitalampanum. Þetta mun allt saman leysast. Þau halda ekki, rökin þar sem spurt er og haldið fram: Af hverju ætti einhver að vilja lána pening ef hann fær hann ekki til baka plús vextir? Þeir sem eiga pening, sumir eiga fullt af peningum, hafa það verkefni, ef þeir ætla sér það, að ávaxta þá. Það getur farið í báðar áttir. Það þekkjum við. Það fór alveg ofboðslega mikið í aðra áttina í hruninu hjá okkur. Fjárfestar eru fullorðið fólk sem mun lifa það af og átta sig á því að heimurinn er harður og eignaverð getur farið upp og niður og verðmæti peninga sömuleiðis.