vextir og verðtrygging.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni ræðuna um það frumvarp til laga sem er hér til umræðu um vexti og verðtryggingu eða breytingu sem varðar húsnæðislið í vísitölu neysluverðs. Það var margt athyglisvert í ræðu hv. þingmanns, sér í lagi sá partur ræðunnar þar sem hv. þingmaður talaði um áhrif verðtryggingar á landsbyggðina og köld svæði. Hv. þingmaður ræddi m.a. þróun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu, sem hefur keyrt áfram þær hækkanir sem verið hafa að baki hækkun á vísitölu neysluverðs undanfarin misseri. Gengisstyrking krónunnar hefur síðan haldið aftur af því, þessir tveir þættir hafa í raun ráðið miklu um þróun vísitölunnar sem mælikvarða og þeirrar staðreyndar að hér hefur verðstöðugleiki verið mældur með þessum hætti í hartnær fjögur ár.
Hv. þingmaður ræddi í andsvari við hv. þm. Ólaf Ísleifsson um verðtrygginguna. Það er það sem ég ætlaði að spyrja um í fyrra andsvari. Það er viðurkennt að verðtryggingin valdi sveiflum í hagkerfinu og óstöðugleika í sjálfu sér, eins og verðtryggingin virkar því að mikill hluti af lánasamningum til kaupa á húsnæði er á því formi. Það má færa fyrir því rök að það hvetji til aukinnar skuldsetningar eins og fyrirkomulagið er á jafngreiðslulánum. Það þvælist fyrir framgangi peningastefnu þar sem það bítur ekki eins mikið, það hefur komið fram, og truflar þannig leiðni stýrivaxta.
Spurning mín er í raun og veru um afstöðu hv. þingmanns til verðtryggingar: Hvaða leiðir sér hann í því efni? Það mál sem við ræðum hér, ef við myndum taka þetta fyrirkomulag til gagngerrar endurskoðunar — af þessum lánum — þyrftum við ekki að ræða þennan mælikvarða.