vextir og verðtrygging.
Virðulegur forseti. Já, þessi umræða hér í dag væri verulega einfaldari ef verðtryggingin væri ekki til staðar. Þá værum við eflaust ræða eitthvert annað þjóðþrifamál þessa stundina. Ég hef ekkert á móti því að ákveðnir aðilar geti bundið sig í verðtryggðum samningum. Ríki, sveitarfélög, ákveðin gerð stærri fyrirtækja, segjum til að mynda leigufélög, stærri fasteignaleigufélög, hver sem rekstrarlegur tilgangur þeirra er, sem eru gegnumgangandi með vísitölubundna leigusamninga. Til áhættuminnkunar þætti mér ekkert athugavert við að slíkir aðilar væru með fjármögnun sína í verðtryggðum pappírum sem þá um leið yrðu, ef allt væri eðlilegt, á allt öðrum raunvaxtakjörum en við verðum að horfa á í dag. Það gæfi þá aftur t.d. í tilfelli leigufélaganna svigrúm til verulega lækkaðrar leigu. Vaxtakostnaður er auðvitað, ég myndi halda það án þess að ég hafi skoðað það, langmesti kostnaðurinn, fjármögnunarkostnaður er langstærsti kostnaðarliður þessara félaga. Aftur snýst þetta allt um að ná vöxtum niður.
Til að svara hv. þingmanni þá finnst mér líklegt að halda að hann hafi verið að horfa til þess hver afstaða mín gagnvart verðtryggðum lánum til einstaklinga sé. Þá held ég að við þurfum að leita allra mögulegra leiða til að komast út úr því kerfi sem nú er við lýði. Þetta deyfir auðvitað markaðinn. Við þurfum að ná raunvaxtastiginu niður. Það næst auðvitað allt eins niður í óverðtryggðu umhverfi og verðtryggðu. En það er svo lamandi hvernig þetta virkar núna og hefur í raun svo neikvæð áhrif eða lamandi áhrif hvað það varðar að peningastefnan virki bærilega. Mín afstaða er sú að við verðum að finna leið út úr þessu kerfi.