vextir og verðtrygging.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og ég skil hann sem svo að hann myndi vilja breyta fyrirkomulaginu. Ég tek undir með hv. þingmanni og ég hef stundum sagt að við verðum að komast út úr þessari umræðu að banna eitthvað, við eigum að breyta fyrirkomulaginu þegar einstaklingar taka lán til fasteignakaupa. Stóri hlutinn af þessum verðtryggðum lánum er þegar einstaklingar skipta við lánastofnanir. Þeir flestir hverjir hafa ekki þá þekkingu sem þarf og reynslu til að kljást við lánastofnanir í slíkum samningum. Hins vegar er ekkert óeðlilegt við að verðtryggðir samningar séu heimilir. Ég tel til að mynda skynsamlegt þegar ríkið er að gefa út skuldabréf að það væru verðtryggð bréf að hluta til og að stórir fjárfestar á markaði geri slíka samninga sín á milli. Það myndi styrkja peningamál og hagkerfið. En við eigum ekki að hafa þetta fyrirkomulag þegar kemur að einstaklingum og fjárfestingu í húsnæði, við eigum að breyta þessu fyrirkomulagi.
En að vísitölunni. Gefum okkur það að við sitjum föst hér áfram með þessa umræðu um verðtryggingu og breytingarnar. Nú er vísitala bara mælikvarði á einhverjar stærðir og hægt að reikna út vísitölu í raun og veru á hverju sem er. Við gætum til að mynda reiknað út vísitölu á trausti til Alþingis og tekið síðan reglulega upp í umræðunni hvernig sú vísitala þróast. Hér er lagt til að taka húsnæðisliðinn út úr vísitölunni. Flestir hagfræðingar, alla vega þeir sem ég hef kynnt mér, vilja reikna (Forseti hringir.) húsnæðiskostnað með einhverjum hætti inn í vísitölu. Ég myndi vilja fá álit hv. þingmanns á því.