148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[14:44]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka spurninguna frá hv. þingmanni. Ég held að einn valkostur væri að forma nýja vísitölu þar sem verðþáttur húsnæðis væri tekinn út, rekstrarþáttinn væri inni. Án þess að ég hafi gert sérstaka úttekt á því þá held ég að af tveimur valkostum væri mikilvægara að taka húsnæðisliðinn út og láta aðra liði halda sér vegna þess að rekstrarhluti húsnæðisins sveiflast að öllum líkindum með mjög svipuðum hætti og aðrir þættir vísitölunnar. Ég verð að ítreka að ég hef ekki skoðað þetta sérstaklega en ég held að skekkjan gagnvart, við skulum kalla það raunheimum, myndi minnka með þessu.

Vissulega er húsnæðisliðurinn tekinn út í heild sinni í tillögunni og þar með rekstrarhlutinn. Án þess að hafa skoðað það „grundigt“ eins og ég segi þá myndi ég telja að rekstrarhluti fasteigna sveiflaðist með mjög svipuðum hætti og aðrir þættir vísitölunnar, það myndi sem sagt passa á móti öðrum hlutum vísitölunnar en fasteignaverðshlutinn væri kominn út, sá hluti sem til að mynda, eins og við þekkjum, orsakar það að vísitalan hefur yfir höfuð hækkað undanfarin ár á meðan gengisbreytingarnar hafa verið að vinna í hina áttina. Ég held að ég verði að svara spurningunni með þessum hætti, ef spurt er um tvo valkosti. Best væri ef það væri vísitala þar sem rekstrarþáttinn væri inni og hann er án nokkurs vafa hægt að forma, en ég held að skekkjan verði ekki mjög umtalsverð þó að húsnæðisþátturinn í heild sé tekinn út vegna þess rekstrarhluti húsnæðisþáttarins sveiflast með svipuðum hætti og aðrir þættir vísitölunnar sem eftir væru.