vextir og verðtrygging.
Virðulegur forseti. Þetta er mjög áhugaverð umræða að taka þátt í og ég deili þeim áhuga sem hér hefur komið fram varðandi hversu æskilegt væri að losna við þetta útlánaform, í raun og veru verðtrygginguna almennt sem hefur gegnsýrt okkar fjármálakerfi um áratugaskeið. Mér þykir við samt oft skjóta okkur fram hjá rót vandans sem er í raun og veru að verðtrygging í gegnum tíðina hefur verið leið okkar til að takast á við hátt vaxtastig, háan vaxtakostnað hér á landi, mun hærri vaxtakostnað en í nágrannalöndum okkar. Til þess að reyna einfalda málin: Við völdum þessa leið á endanum til þess að taka þennan vaxtakostnað að láni, ef svo mætti orða, í gegnum lánstímann, að dreifa vaxtabyrðinni einhvern veginn yfir lánstímann en sætta okkur um leið við alla þá skelfilegu fylgifiska sem því fylgja eins og háa greiðslubyrði lánanna í gegnum allan lánstímann, þennan ófyrirsjáanleika með höfuðstól sem getur tekið öllum sveiflum út frá sveiflum í verðlagi hér á hverjum tíma.
Það leiðir hugann aftur að annarri rót vandans sem er einmitt óstöðugleiki í verðlagi og oft og tíðum óstöðugleiki í gjaldmiðli okkar og myntumhverfi sem er mjög drjúgur partur af verðbólgu okkar í gegnum tíðina. Við sjáum að u.þ.b. 40% af verðbreytingum hér á landi á undanförnum áratugum eiga rót að rekja beint til sveiflna í gjaldmiðli. Við njótum reyndar góðs af því núna þegar krónan hefur verið að styrkjast og þess vegna er innlend verðbólga án húsnæðis mjög lág, en oftar en ekki hefur því verið öfugt farið. Við höfum verið að taka á okkur mikil gengishögg sem hafa leitt til mikilla hækkana á höfuðstól verðtryggðra lána og mikillar verðbólgu.
Þessi umræða er nátengd umræðunni um það hvort við ættum að ganga svo langt að banna beinlínis verðtryggingu, leggja skýrt bann við því að heimilt sé að verðtryggja lán. Eins lítill aðdáandi verðtryggingar og ég er, ég mæli engan veginn með þessu lánaformi, þá hef ég líka bent á að óverðtryggðu vextirnir okkar eru yfirleitt hærri. Okkur standa til boða í algengasta lánaformi okkar, húsnæðislánunum, að taka þau lán líka óverðtryggð og gegnumgangandi hafa vaxtakjörin þar verið hærri en okkur eru boðin í verðtryggðum lánum hverju sinni, að teknu tilliti til verðbólgu líðandi stundar. Mér sýnist svo vera enn. Lífeyrissjóðir eru í dag að bjóða hagstæðustu kjör verðtryggðra lána á bilinu 2,6–2,8% verðtryggða vexti, reyndar breytilega vexti, á meðan hagstæðustu kjör sem boðið er upp á í óverðtryggðum lánum eru einhvers staðar frá 5,6 og upp í 6%. Það er talsvert meira álag en sem nemur verðbólgu líðandi stundar sem er rétt rúmlega 2% í dag. Þetta virðist eiginlega alltaf hafa verið svona.
Mögulega má segja að lánveitendur telji sig betur varða í verðtryggðum kjörum en óverðtryggðum og séu tilbúnir til að taka meiri áhættu eða dýfa sér neðar. Mér finnst þetta hins vegar endurspegla enn og aftur, og ég get eiginlega endurflutt ræðu frá því áðan, að stundum borgar sig að ráðast að rót vandans sem er óstöðugleiki gjaldmiðilsins sem við erum með og kostnaður peningastefnunnar sem við vinnum eftir.
Ég hef sjálfur verið talsmaður þess mjög lengi að okkur væri mun betur borgið með því að taka upp aðra og stærri mynt. Ég byggi það ekki á einhverri blindri aðdáun á Evrópusambandinu sem gjarnan er nefnt í því samhengi heldur horfi ég einfaldlega á þann kalda veruleika að svona lítið myntsvæði eins og íslenska krónan verður aldrei stöðugt, alveg sama við hvaða peningastefnu verður stuðst. Krónan okkar verður alltaf eins og korktappi á úthafinu að takast á við sveiflur í umhverfi okkar. Það sem verra er, áhrifin af þessum gengissveiflum verða alltaf miklu meiri en nágrannalönd okkar eiga að venjast af því að við erum miklu útsettari fyrir innflutningi eða áhrifum á innflutt verðlag en þau efnahagskerfi sem við berum okkur saman við. Það finnst mér meginrökin fyrir stærra myntsvæði. Það er einfaldlega af því að viðskipti okkar innan þess sama myntsvæðis verða meiri heldur en eru innan krónunnar. Það sama má t.d. segja um Norðmenn eða Svía. Noregur er í grófum dráttum tífalt stærra hagkerfi en okkar, Svíþjóð um þrjátíufalt stærra hagkerfi. Þar er einfaldlega miklu meiri framleiðsla heima fyrir, miklu minni áhrif af sveiflum í gengi gjaldmiðlanna þó svo að vissulega sveiflist allir gjaldmiðlar. Það eru þessi áhrif inn í verðlagið heima fyrir sem skipta mestu máli.
Ég horfi alltaf á það sama: Rót vandans er óstöðugt gengisumhverfi og hátt vaxtastig. Háa vaxtastigið er að einhverju leyti bein afleiðing af hinu fyrrnefnda. Við erum með einhverjum hætti að reyna að hafa hemil á gjaldmiðlinum okkar, reyna að tryggja það, og það virðist vera mat Seðlabankans í það minnsta, að hér þurfi að vera viðvarandi hátt vaxtastig, plús/mínus 3% raunvaxtamunur við nágrannalönd okkar, til að halda gjaldmiðlinum sæmilega stöðugum og hefur hann þó ekki verið neitt sérlega stöðugur í því umhverfi.
Ég kalla eftir því að við förum í umræðu í þinginu um þessa endurskoðun á peningastefnunni. Ég er opinn fyrir öllum hugmyndum. Þetta er allt of kostnaðarsamt vandamál fyrir bæði atvinnulíf og heimili að vera með svona kostnaðarsama mynt. Ef við getum fundið betri leið með íslenskri krónu þá er ég alveg tilbúinn til að hlusta á rök fyrir því. Við höfum hins vegar ekki fundið þá leið enn þá. Ég kalla líka eftir því að menn nálgist það með opnum huga að mögulega þurfi að finna aðrar lausnir en krónuna ef við viljum raunverulega ná kostnaði heimilanna niður. Það hlýtur að vera sameiginlegt markmið okkar allra.
Ég nefndi það áðan að innlendar skuldir hagkerfisins eru um 6 þús. milljarðar. Vaxtamunurinn, hvert prósent kostar okkur þar af leiðandi um 60 milljarða á ári. 3% vaxtamunur kostar okkur 180 milljarða á ári og hann er í það minnsta það, ef ekki hærri, þegar við berum okkur saman við t.d. þau lánskjör sem bjóðast í óverðtryggðum húsnæðislánum í nágrannalöndum okkar á móti óverðtryggðum lánum hér.
En ef við förum aðeins aftur að efni þeirrar tillögu sem hér liggur fyrir. Hvort væri betra að vera með vísitölu neysluverðs með eða án húsnæðis þegar kemur að verðtryggingu langtímaskuldbindingar? Mín persónulega skoðun er að hvort tveggja sé jafn slæmt. Hvort tveggja er verðtryggt. Úr því umhverfi vil ég helst losna.
Ég velti því aðeins fyrir mér hvort flutningsmenn þessarar tillögu hafi skoðað hvaða áhrif þetta myndi hafa á markaði. Á endanum erum við alltaf með þennan sama samanburð. Við erum með óverðtryggð kjör og verðtryggð kjör sem lánveitendur eru væntanlega stöðugt að bera saman, þennan vaxtamun sem er viðvarandi á milli. Ef við breytum grunninum í útreikningi á verðtryggðum kjörum þannig að áhrif verðbólgu yrðu væntanlega að meðaltali minni en þau eru í dag, hefði það ekki bara áhrif á verðtryggðu vextina? Ég myndi í það minnsta óttast að það yrði nákvæmlega það sem myndi gerast. Ef við myndum nú kippa út helmingnum af þeim liðum sem notaðir eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs hverju sinni — oft gott að taka einhver öfgadæmi til samanburðar — þá held ég að það leiki ekki nokkur vafi á því að væntanlega myndu lánveitendur bara aðlaga sig að því. Húsnæðisliðurinn er um fjórðungur eða fimmtungur ef ég man rétt af vísitölunni. Ég óttast að þetta gæti haft veruleg áhrif.
Í öðru lagi horfum við líka til annarrar tillögu sem liggur fyrir þinginu núna um að styðjast fremur við samræmda vísitölu neysluverðs sem er ekki með fasteignaverðinu sjálfu inni heldur einvörðungu húsnæðiskostnaðinum. Þá spyr maður sig: Er það kannski eðlilegri nálgun? Húsnæðiskostnaður endurspeglar jú einhvern veginn framfærslukostnað okkar á hverjum tíma, við værum þá frekar að reyna að festa okkur í þeirri mælingu sem hinni almennu verðmælingu og líka mælingu á verðbólgu á hverju stigi, hverju tímabili, en ekki bara hækkun fasteignaverðs.
Ef við horfum á samanburðinn á þessu tvennu þá finnst mér athyglisvert að sjá að vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur hækkað frá 1988 um um það bil 16% minna en vísitala neysluverðs með húsnæði. Um þetta munar verulega. Það þarf ekki að fara í grafgötur með það. Þetta eru 30 ár sem í dag teldist sennilega einhvers konar meðallíftími fasteignaláns. Það er því alveg ljóst að einstaklingur sem hefði tekið 30 ára lán með þennan grunn, að öllu öðru óbreyttu, hefði borgað 16% minna þegar upp væri staðið. Það er hins vegar athyglisvert að það er eiginlega meiri munur, sýnist mér í fljótu bragði, á samræmdu vísitölunni en þetta. Ég verð að segja að það kom mér í raun á óvart að munurinn væri ekki meiri en þessi 16% yfir þetta langa tímabil. Við vitum auðvitað að fasteignaverð sveiflast, það koma löng tímabil þar sem fasteignaverð hreyfist lítið sem ekkert, lækkar jafnvel í það minnsta að raunvirði.
Ég velti því fyrir mér hvort flutningsmenn þessarar tillögu hafi skoðað einmitt samanburðinn á þessu tvennu. Þarna sýnist mér að að öllum líkindum hafi annar húsnæðiskostnaður okkar lækkað talsvert á þessu tímabili sem vegi í raun á móti fasteignaverðshækkunum. Það gæti verið mjög áhugavert að velta því fyrir sér í þessu samhengi. Það er fljótlegt að nefna einn þátt: Vextir koma inn í útreikning á þessum vísitölum. Þeir hafa lækkað, raunvextir hafa lækkað verulega á þessu tímabili og hafa vafalítið áhrif þarna. En ef ég man rétt, þegar ég skoðaði þá tillögu sem hv. þm. Willum Þór Þórsson er flutningsmaður að og er þegar komin fyrir þingið, um að nýta samræmda vísitölu í stað vísitölu neysluverðs, þá var munurinn á þessum tveimur vísitölum áþekkur, þ.e. um 15–20%, á mun skemmri tíma, sennilega ekki nema tíu, fimmtán árum sem ég held að ég hafi skoðað í þeim samanburði. Ég held að þetta gæti verið áhugavert út frá hagsmunum neytenda þegar við berum saman þessar tvær mismunandi vísitölur.
Ég óttast hins vegar eins og ég nefndi áðan að þetta myndi á endanum koma fram með einhverjum hætti í hærra vaxtastigi en ella ef við færum að fikta í grundvelli vísitölunnar. Þar liggur hundurinn grafinn, ef svo mætti að orði komast. Við erum með peningastefnu þar sem er verulegur vaxtamunur miðað við nágrannalönd okkar, 3% að raungildi undanfarin ár og áratugi raunar. Við erum með of litla samkeppni á fjármagnsmarkaði að mínu viti. Þó svo að lífeyrissjóðir hafi verið að auka útlán sín núna með beinum hætti til fasteignakaupa þá sýnist mér að almennt sé samkeppni á fjármálamarkaði of lítil og við heyrum raunar kvartanir út af áhrifum innflæðishaftanna núna um að það sé hreinlega komin stífla í markaðinn, það vanti innflæði erlends fjármagns af því að lífeyrissjóðir séu fyrst og fremst að fara út og sinni miklu minna en áður fyrirtækjamarkaði t.d. og sveitarfélagamarkaði. Vaxtakjör á þessum útlánum séu að hækka á sama tíma og Seðlabankinn er að lækka vexti. Þetta er auðvitað umhugsunarefni.
Og af hverju erum við með litla samkeppni á fjármagnsmarkaði? Okkur hefur aldrei tekist að fá erlenda aðila til að starfa hér á þessum markaði, ekki nema bara að því marki að lána stærstu og sterkustu fyrirtækjunum okkar með tekjur í erlendri mynt. Það eru einu aðilarnir sem erlendir fjármagnsaðilar, erlendir bankar, hafa í raun og veru viljað snerta á. Skýringin sem maður heyrir á áhugaleysi þeirra er myntin, þeim finnst einfaldlega að markaðurinn sé of lítill, myntin of sveiflukennd, til þess að þeir vilji setja sig inn í okkar hagumhverfi. Það sé bara einfaldlega of kostnaðarsamt fyrir banka sem þessa út frá áhættuvörnum, út frá þeirri sérfræðiþekkingu sem þeir þurfa að fjárfesta í og svo framvegis, að sinna markaði sem á endanum í heild sinni er á stærð við tiltölulega litla borg í flestum þessara landa. Þar er auðvitað vandinn.
Sá vandi kemur enn og aftur sýnist mér mjög berlega í ljós núna þegar við höfum verið undanfarin ár í virku söluferli með tvo banka, það má ekki gleyma því. Það hafa verið gerðar ítrekaðar tilraunir til að selja Íslandsbanka af hálfu Glitnis eða slitastjórnar Glitnis án árangurs og á endanum varð niðurstaðan sú að afhenda ríkinu bankann af því að það tókst ekki að selja hann. Við höfum nýlegt dæmi núna um tilraunir slitastjórnar Kaupþings eða Kaupskila til að selja hlut í Arion banka, hvort heldur sem er til innlendra eða erlendra aðila. Það gekk ekki eða það má segja að það hafi nánast ekki gengið neitt, ekki nema bara til núverandi hluthafa bankans eða Kaupþings sem sagt, sem síðan er deilt um hversu æskilegir séu sem langtímafjárfestar í bankakerfinu okkar eða ekki. Ég held að við megum ekki gleyma því í þessari umræðu, eins slæm og verðtryggingin er, að við verðum að ráðast að rót vandans sem er hátt vaxtastig, óstöðug mynt og óstöðugt gengisumhverfi sem við glímum við og verðbólgan sem af því hlýst.