148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[15:02]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Víglundssyni fyrir innlegg hans. Ég þekki það mjög vel að hann vildi gjarnan sjá hér aðra mynt en við erum með, en í þeim efnum erum við ekki sammála þótt við séum eflaust sammála um ýmislegt annað. En mér leikur hugur á að vita hvað hann sér fyrir sér gagnvart heimilum, hinum almenna íbúðarlántaka. Þá er ég ekki að tala um fyrirtækjamarkaðinn, ekki ríkið. Hvað sér hann fyrir sér? Vill hann hafa óbreytt kerfi hvað verðtrygginguna varðar eða sæi hann kost í því að setja einhverjar takmarkanir á verðtrygginguna? Hverjar væru þær þá?