148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[15:03]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég játa það fúslega að ég hef í tillögum mínum horft mjög mikið á rót vandans og hvernig við tökum á honum, hvort heldur með endurskoðun peningastefnu út frá krónum, eins og í gegnum myntráðsleiðina sem Viðreisn lagði til, eða hreinlega hreina og klára upptöku erlendrar myntar, sem ég tel reyndar alltaf vera besta kostinn í slíku.

Ég útiloka ekki að hægt sé að lagfæra með einhverjum hætti verðtrygginguna sjálfa með einhverjum útfærslum sem þessum. Ég hef margoft velt fyrir mér því sama, hvort við ættum að kippa út svona liðum, alla vega fasteignaverðinu sjálfu. Ég teldi líka ekkert óeðlilegt að kippa út í þeim samanburði skattákvörðun stjórnvalda á hverjum tíma. Ég tel óeðlilegt að ákvarðanir um skattheimtu ríkissjóðs hafi áhrif á verðtryggðar skuldir. Ég hef ekki talið það góða hugmynd að takmarka heimildir heimilanna til verðtryggðra skulda. Ég held að við verðum að leyfa fólki að hafa frelsi til að ákveða það sjálft hvort það taki verðtryggt eða óverðtryggt lán eða einhverja blöndu þar af.