vextir og verðtrygging.
Virðulegur forseti. Mig grunar að hv. þingmaður hafi misskilið spurningu mína örlítið. Ég var að meira að hugsa takmarkanir frá enda lánveitandans. Ekki valkost heimila til að taka verðtryggð lán eða óverðtryggð heldur að ramma inn lánveitingarheimildirnar með einhverjum þeim hætti. Hér fyrr í dag var það í einhverju samhengi kallað kaskótrygging án sjálfsábyrgðar fyrir lánveitandann, hann væri með belti og axlabönd, smekk og allar þær öryggisráðstafanir sem mögulegar væru, en lántakandinn væri úti í vindinum ef eitthvað óvænt kæmi upp á.
Hafa slík atriði eitthvað komið til skoðunar hjá hv. þingmanni eða í hans ranni?