148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[15:06]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég biðst forláts á því. Það er greinilegt að ég misskildi aðeins spurninguna. Frá hlið lánveitanda mætti auðvitað velta fyrir sér hvort það ættu að vera einhvers konar þök ef verðbólguskot koma, eins og við þekkjum, einhvers konar takmörk fyrir því hvort það geti gengið að fullu út í verðtrygginguna eða ekki. Ég er satt best að segja frekar efins um slíkar ráðstafanir, það er þó ekki svo að ég beri ekki hag neytenda fyrir brjósti.

Ég taldi reyndar á sínum tíma þegar við fórum í gegnum hrunið að full ástæða hefði verið til slíkra inngripa þá og hefði reyndar verið tækifæri til þess að mínu viti ef mönnum hefði haldist á fjármálakerfinu eins og var í raun búið að stilla því upp með neyðarlögunum. Að hægt hefði verið að endurskipuleggja heimilin hraðar og með ákveðnari hætti en raunin varð.

En almennt séð, burt séð frá slíkum — ef getum við sagt náttúruhamförum eins og þarna urðu, held ég að reynsla okkar af því að reyna að setja einhvers konar þak á hámarksvexti eða eitthvað þess háttar hafi aldrei gefið neitt sérstaklega góða raun. Á endanum eru einhverjir markaðskraftar á takast á undir niðri þó svo að markaðurinn sé ófullkominn.