vextir og verðtrygging.
Frú forseti. Ég þakka ræðumanni fyrir hans ágæta innlegg. Það er auðvitað mjög gagnlegt að maður með hans bakgrunn, líka í samskiptum á vinnumarkaði og varðandi ábyrgð á lífeyrissjóðunum leggi hér orð í belg. Hann lýsir áhyggjum sínum af því að verði húsnæðisliðurinn felldur út úr vísitölunni muni hinir svokölluðu óverðtryggðu vextir einfaldlega verða hærri. Í ljósi þess að verðtryggingarjöfnuður — ég kann nú ekki vel við að nota það orð, við getum bara sagt að í ljósi þess að bankarnir hagnast á verðbólgu vegna þess að þeir eiga meira af verðtryggðum eignum en sem þeir skulda verðtryggt, og í ljósi þess að samkeppnin á milli þeirra er vægast sagt ófullkomin, eins og hv. ræðumaður hefur sjálfur tekið hér fram, er hann undrandi á því eða myndi það koma honum á óvart að óverðtryggðir vextir myndu hækka í því fákeppnissamfélagi sem við búum við í þessum efnum?