148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[15:10]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka svarið. Þetta mætti auðvitað ræða lengi. Ef við lítum á vexti á verðtryggðum skuldbindingum er enginn markaður þar sem við getum borið okkur saman. Við getum borið saman við vexti á óverðtryggðum lánum. Það er bara nokkuð sem hægt er að jafna saman við sambærilega hluti í nágrannalöndum okkar og heiminum öllum hvað þetta varðar. En hvað verðtrygginguna varðar er enginn samanburður.

Það verður að segjast eins og er að þessir svokölluðu verðtryggðu vextir bera ekki sérlega sterk einkenni þess að þeir séu markaðsmyndaðir að neinu verulegu leyti, heldur fæðast þeir í þessu samfélagi fákeppni og ójafnaðar, ef ég má leyfa mér að segja það. Ég geri ráð fyrir því að ekki sé mikill skoðanamunur hjá mér og hv. þingmanni á því að almennt talað eru boð og bönn miður æskileg í viðskiptalegum efnum.

En er það möguleiki í huga hv. þingmanns að sett yrðu ákvæði sem myndu takmarka hversu hátt verðtryggðir vextir gætu náð?