148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[15:13]
Horfa

Flm. (Þorsteinn B Sæmundsson) (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hlusta alltaf með athygli þegar hv. þm. Þorsteinn Víglundsson tekur til máls um efnahagsmál og ber virðingu fyrir hans miklu þekkingu á þeim málaflokki. Við erum sammála, held ég, um eitt, ég og hv. þingmaður, þ.e. að peningamálastefnan eins og hún er rekin á Íslandi í dag sé handónýt. Okkur greinir kannski aðeins á um hvernig hægt væri að breyta því, af því hv. þingmaður er sýnu frjálslyndari en ég að því leyti að hann er til í að taka upp aðra mynt, sem ég er tregur til.

Þess vegna langar mig til að spyrja hv. þingmann: Hvaða breytingar sér hann helstar nauðsynlegar til að breyta peningamálastefnunni eins og hún er rekin núna innan þess að við höldum í myntina? Hvað telur hann nauðsynlegt til þess að svo geti orðið? Ég er algerlega sammála þingmanninum um að hátt vaxtastig gerir Ísland lítt samkeppnisfært. Ungt fólk sest ekki hér að vegna þess að það er dæmt til að borga þrefalda til fjórfalda vexti á fasteignalánum miðað við nágrannalöndin. Það er óþolandi.