vextir og verðtrygging.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Eins og ég vakti athygli á í nýlegri ræðu hafa verðbólguvæntingar Seðlabankans á hverjum tíma, sem hann leggur m.a. til grundvallar þegar hann tekur stýrivaxtaákvarðanir, verið fjarri öllu lagi í fjögur ár eða svo, alveg víðáttufjarri. Þá segir maður: Getur verið að þessi ofáætlun Seðlabankans á væntri verðbólgu séu undirrót þess að menn hafa ekki klesst hér niður vextir hraðar en raun ber vitni?
Önnur spurning. Fyrir nokkru bar ég saman í snöggheitum verðbólgu á Íslandi og í Bretlandi. Munurinn var ekki svo mikill á milli landanna að undantekinni kreppunni 2008–2009 þegar hrunið dundi yfir. En í Bretlandi höfðu stýrivextir breska seðlabankans verið óbreyttir frá 2006, ef ég man rétt, jafnvel lengra aftur, í 0,25%. Því hlýtur maður að spyrja, vegna þess að verðbólgan og pundið hefur verið stöðugt þó að það sé kannski ekki eins mikil skopparakringla krónan: Hvað réttlætir þessa gríðarlegu stýrivexti?