148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[15:17]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ef maður gæti alltaf skyggnst inn í hugarheim Seðlabankans gæti ég sjálfsagt svarað þessu betur. Ég er alveg sammála, ég tel að vaxtamunur hafi verið og sé of mikill, eins og ég nefndi áðan varðandi það að við hefðum prófað flestar útfærslur. Ég ætla ekkert að útiloka að við gætum samt snúið til einhverrar betri stefnu með krónu en við höfum nú. Slík stefna þyrfti að byggja á gengisstöðugleika sem útgangspunkti, hvort sem það væri hrein fastgengisstefna eða einhvers konar útfærsla þar á, sem þýðir að stýritæki Seðlabankans þyrftu að vera önnur en vextirnir. Vextir yrðu ákvarðaðir út frá því sem þyrfti til að tryggja gengisstöðugleika hverju sinni ef þyrfti að hemja hagkerfið eða örva. Burt séð frá því þyrfti að gera það með öðrum leiðum og ég hygg reyndar út frá umræðu um peningastjórnun (Forseti hringir.) á undanförnum misserum að seðlabankar séu almennt farnir að horfa meira til þess sem kallað hefur verið makróstýritækjaveðhlutföll á lánum. Aðrir slíkir þættir eru til þess einmitt að reyna að grípa með beinum hætti inn í framboðs- eða eftirspurnarþrýsting hagkerfisins á hverjum tíma.