vextir og verðtrygging.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Víglundssyni fyrir þessa ræðu. Þetta var góð ræða. Það blaka á mér eyrun eins og fleirum þegar hann heldur ræður um peningamál.
Spurning mín til þingmannsins er í sambandi við vextina, hún er svipuð spurningu sem ég spurði hv. þm. Þorstein Sæmundsson að í morgun, um vaxtastig: Þar sem Seðlabankinn stjórnar stýrivöxtum, er ekki þetta háa vaxtastig að stórum parti út af ávöxtunarkröfu lífeyrissjóðanna? Hvað sér þingmaðurinn fyrir sér í þeim efnum?
Þá man ég eftir grein sem hv. þingmaður skrifaði í haust um að við ættum að láta lífeyrissjóðina í friði. Sér ekki þingmaðurinn sóknarfæri í því að gefa lífeyrissjóðunum tækifæri til að fjárfesta meira erlendis, og þá á hærri vöxtum en þeir fá á Íslandi í sinni ávöxtunarkröfu?