148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[15:20]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni þetta andsvar. Ég er mikill talsmaður þess að lífeyrissjóðir auki erlendar fjárfestingar sínar og auki þær verulega. Ég tel raunar að það sé mikið hættuspil og bara óæskilegt að vera með söfnunarlífeyriskerfi sem er 70–80% í innlendum eignum. Mér finnst í eðli sínu enginn munur á því og að fjárfesta lífeyrissjóði fyrirtækis í hlutabréfum í fyrirtækinu sjálfu. Þarna eru eggin í sömu körfu og fínt að horfa til norska olíusjóðsins sem er beinlínis skikkaður út úr hagkerfinu.

Við höfum sett lífeyrissjóðunum þak um erlendar eignir. Ég hef talað fyrir því að við setjum lífeyrissjóðunum frekar gólf um erlendar eignir því að ég sé enga áhættu fyrir kerfið af erlendum fjárfestingum. Það eykur á áhættudreifingu þeirra. Ég sé hins vegar áhættu af því að það sé of mikið hér innan lands.

Ég held að ég verði að koma að hluta af þessu hvað varðar ávöxtunarkröfuna á lífeyrissjóðina sjálfa í seinna svari, en ég myndi fagna því ef þeir hefðu tækifæri til frekari erlendra fjárfestinga og að við notuðum þá tækifærið og slökuðum á innflæðishöftunum sem svo mjög er kvartað undan hér.