vextir og verðtrygging.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hann á kannski eftir að svara betur, eins og hann nefndi.
Þá kem ég að lánum með föstum vöxtum og verðtryggðum lánum. Mér fannst ég heyra það í ræðunni hjá hv. þingmanni, og fleiri hafa talað um það, að hér sé hvort eð er boðið upp á lán með föstum vöxtum. En er það þá ekki þannig að bankarnir hafa þau lán þannig að lántakinn er í raun leiddur út í að taka frekar verðtryggt lán vegna þess að afborganirnar eru lægri, en kjörin eru slakari til lengri tíma litið? Ef verðtryggðu lánin væru tekin út þyrfti það ekkert endilega að þýða hærri vexti á föstum vaxtalánum.