vextir og verðtrygging.
Frú forseti. Þegar svona stórar spurningar eru undir er erfitt að klára þær á mínútu en ég ætla að reyna. Fyrst varðandi vaxtakjörin, ég myndi einfaldlega vilja sjá breiðari flóru í framboðinu. Af hverju get ég ekki tekið óverðtryggt lán með breytilegum vöxtum heldur eiginlega bara fast með vöxtum til þriggja ára? Það er alveg rétt ályktað hjá hv. þingmanni að það er mun hærra í punkti sem verðtryggt lán sem mér býðst þá með breytilegum kjörum. Ég vil gjarnan geta tekið áhættuna beggja vegna.
Mér fannst að lífeyrissjóðirnir mættu t.d. alveg vera grimmari í þessari samkeppni. Þeim er þó vorkunn að því leytinu til að þeir hafa heldur verið skammaðir fyrir að taka of mikið til sín á húsnæðismarkaði en hitt upp á síðkastið. Það tel ég bara eðlilegt, það er fínt að fá þessa samkeppni. Neytendur njóta góðs af.
Ég hef skoðað talsvert af gögnum um það hvort ávöxtunarkrafa lífeyrissjóðanna, þessi 3,5% raunávöxtunarkrafa, sé einhvers konar vaxtagólf. Ég sé engin merki um það í nágrannalöndum okkar. Við erum með fjölda lífeyrissjóða sem styðjast við þessa núvirðingarkröfu sína en þar er vaxtastig samt sem áður mun lægra en sjóðirnir sjálfir (Forseti hringir.) standa undir núvirðingarkröfunni, þ.e. 3,5% raunávöxtun til lengri tíma, og það er auðvitað ágætlega þekkt samhengi. Lægra vaxtastig þýðir að öðru óbreyttu hærri ávöxtun hlutabréfa og það jafnast þá einhvern veginn út í heildarávöxtun eignasafnsins.