vextir og verðtrygging.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þetta mikilvæga mál og þær umræður sem hér hafa farið fram. Þetta er mál sem Miðflokkurinn flytur og hefur lagt áherslu á. Þetta er brýnt hagsmunamál almennings. Ég verð að segja það úr þessum ræðustóli að ég svolítið hissa á því að stjórnarflokkarnir skuli ekki hafa komið inn í umræðuna með markvissari hætti. Við höfum ekki fengið að heyra stefnu þeirra í þessum efnum. Að vísu að hafa fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks komið hingað í andsvör en við höfum ekki fengið að heyra stefnu þeirra, ekkert heldur frá flokki forsætisráðherra eða frá Samfylkingunni sem hefur talið sig vera svolítið tengda verkalýðshreyfingunni. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir alla landsmenn og ég hefði viljað sjá fleiri flokka taka þátt í þessari umræðu sem snýst um húsnæðisliðinn í vísitölu neysluverðs og hefur áhrif á afborganir lána allra landsmanna.
Mig langar að vitna í bókun efnahags- og viðskiptanefndar frá Alþingis frá 2011. Þar segir, með leyfi forseta:
„Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis samþykkir að hefja á vettvangi nefndarinnar undirbúning þverpólitískrar áætlunar um minnkað vægi verðtryggingar á íslenskum fjármálamarkaði.“
Þetta var fyrir einum sjö árum síðan en ekkert hefur breyst. Við höfum enn hátt vaxtastig og verðtryggingu. Það er með ólíkindum að ekki skuli hafa verið gert neitt í þessum efnum. Það er talað og því er lofað í kosningum og svo framvegis, en ekkert gerist. Það er tími til kominn að stjórnmálaflokkarnir taki sér tak og taki á þessu stóra og mikla hagsmunamáli.
Hér hefur verið rætt um vexti. Þeir eru háir og við þekkjum það öll. Þeir skipta okkur öll máli og þeir koma víða við sögu í íslensku efnahagslífi og hafa áhrif á ótal marga þætti. Það eru leiðir til að lækka hér vexti. Miðflokkurinn lagði áherslu á það fyrir síðustu kosningar. Þar má nefna lífeyrissjóðina. Sú háa lögbundna ávöxtunarkrafa sem hvílir á þeim hefur náttúrlega áhrif á vaxtastigið. Þess vegna er mikilvægt að lífeyrissjóðirnir ávaxti fé sitt erlendis. Stjórnvöld eiga að sjálfsögðu að stuðla að því, því að þegar lífeyrissjóðirnir eru með svo stórt hlutfall af eignum sínum innan lands og ávaxta pening sinn hér lyftir það náttúrlega vaxtastiginu. Það er alveg augljóst mál.
Hv. þm. Ólafur Ísleifsson flutti afar góða ræðu fyrr í dag. Hann minntist á Danmörku í þessum efnum. Það er mun lægra vaxtastig þar. Ég vil í því sambandi einnig nefna Svíþjóð. Vaxtastigið er á svipuðum nótum þar, húsnæðislánin bera 2% vexti. Áttum okkur á því að Svíar eru nú með sænsku krónuna þannig að ég sé ekki hvers vegna við getum ekki farið sömu leið hér og lækkað vaxtastigið.
Annað er, sem einnig má nefna í þessu sambandi, að ef fólk vill greiða upp lán sín og reyna að ná betri kjörum er settur steinn í götu þess. Þar vil ég nefna Íbúðalánasjóð og svokallað uppgreiðslugjald, sem er ósanngjarnt gjald að mínu mati og gerir það að verkum að fólk er eiginlega í fjötrum. Það getur eiginlega ekki skuldbreytt lánum sínum.
Það eru fjölmargir með þessi lán. Að vísu er Íbúðalánasjóður hættur að veita lán með uppgreiðslugjaldsákvæði í dag en það eru fjölmargir með eldri lán sem vilja breyta þeim en eiga erfitt með það vegna þess að uppgreiðslugjaldið er svo hátt.
Aðeins nánar að húsnæðisliðnum. Verð á húsnæði hefur að jafnaði hækkað meira en verð á öðrum vörum og þjónustu. Þess vegna hefur vísitala neysluverðs hækkað meira að meðaltali en vísitala neysluverðs án húsnæðis.
Ef við horfum fimm ár aftur í tímann frá 2016 var verðbólga, miðað við vísitölu neysluverðs, 3% að meðaltali, en 2,2% án húsnæðisliðarins. Þarna er tæplega 1% munur. Það kom fram í ágætri ræðu hv. þm. Þorsteins Víglundssonar að um 1% vaxtamunur þýddi um 60 milljarða. Þetta eru gríðarlega háar upphæðir sem skipta almenning í landinu mjög miklu máli og fyrir greiðslubyrði almennings af húsnæðislánum. Ég vil nefna það hér að seðlabanki Evrópu og Englandsbanki miða verðbólgumarkmiðið við verðvísitölu sem inniheldur ekki húsnæðiskostnað þeirra sem búa í eigin húsnæði.
Mig langar líka að nefna það, því að ég hlustaði með athygli á ræðu hv. þm. Þorsteins Víglundssonar, að ég er alveg hjartanlega sammála þingmanninum í því að það er mjög mikilvægt að fá hingað samkeppni í fjármálageirann, að fá erlenda banka hingað til lands. Við höfum lagt áherslu á það í Miðflokknum og gerðum það fyrir kosningar. Við mundum vilja stuðla að því að hingað kæmi erlendur banki og hæfi starfsemi í landinu til að auka samkeppni. Það gæti leitt til lægri vaxta og mun leiða til lægri vaxta.
En hv. þm. Þorsteinn Víglundsson sagði að hann teldi að fullreynt væri að fá hingað erlenda banka, þeir hefðu ekki áhuga á því vegna þess að við værum með krónuna. Ég er ekki sammála hv. þingmanni hvað það varðar. Ég vil nefna í því efni að t.d. í Bandaríkjunum er banki sem heitir City Bank. Hann er með útibú í 160 löndum eins og Úkraínu, Kongó, Tansaníu og Pakistan.
Svo ég nefni Úkraínu sem dæmi þá er gjaldmiðillinn þar afar óstöðugur og hefur fallið gríðarlega. Það sama má segja um gjaldmiðilinn í Kongó, þannig að ég held að það sé ekki alveg rétt hjá þingmanninum, það er að a.m.k. ekki fullreynt að hingað komi erlendur banki. En þetta er einnig mikið hagsmunamál almennings og stjórnvöld eiga að stuðla að því að fá erlendan banka inn á inn á fjármálamarkað okkar. Við þekkjum það bara varðandi þjónustugjöldin sem eru gríðarlega há hér meðal banka. Það er með ólíkindum hvað bankarnir geta leyft sér að taka há þjónustugjöld af almenningi.
Að lokum vil ég nefna að Seðlabanki Íslands telur að ekkert sé því til fyrirstöðu að breyta viðmiðunarvísitölu verðbólgumarkmiðsins, kjósi stjórnvöld að gera svo. Það er nákvæmlega sama eins og ég sagði; þetta er pólitísk ákvörðun og hana er hægt að taka hér í þessum sal.