148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[15:33]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf):

Frú forseti. Þetta hefur verið ágæt umræða, þótt hún sé ekki búin enn, og um margt ákaflega gagnleg að minni hyggju. Innsti kjarni þessa máls er að mínum dómi þessi: Verðtrygging fjárskuldbindinga á lánum til einstaklinga er einfaldlega óboðleg. Það sést til að mynda af því að þau ákvæði sem sett hafa verið í lög til verndar neytendum hafa reynst haldlítil eða allt að því haldlaus þegar á þau hefur reynt fyrir dómstólum. Slíkt slíkur er máttur fjármagnsaflanna hérna að ekkert verður fyrir þeim. Þetta fyrirkomulag verður að víkja. Það verður að hverfa.

Hv. þm. Birgir Þórarinsson gat þess að góðu, sem ég þakka honum fyrir, að ég hefði vikið að fyrirkomulagi mála í Danmörku. Það var gott að hann skyldi nefna Svíþjóð. Við gætum nefnt fleiri lönd í nágrenni okkar. Ég átta mig ekki á því hvað stöðvar okkur í því að koma hér á laggirnar sérhæfðum íbúðalánafyrirtækjum eða -stofnunum eins og tíðkast í Danmörku, sem byggja á sérhæfingu á þessu sviði.

Við erum með aðila sem eru í íbúðalánum sem eru að meginstefnu til í annars konar viðskiptum og erindum. En í Danmörku háttar þannig til að það eru sérhæfðar stofnanir, sérhæfð fyrirtæki sem hafa þessi mál einkanlega með höndum með þeim árangri að maður í Kaupmannahöfn sem ætlar að taka lán fyrir íbúð í Köben, eins og okkur er gjarnt að segja hérna á landinu fagra, fær þetta lán þegar ég síðast frétti á 1,9% vöxtum.

Það er náttúrlega engin verðtrygging eða neitt slíkt. Þessi maður veit upp á upp á krónu hvað hann á að borga á hverjum gjalddaga og því fær ekkert haggað. Málið er alveg klárt.

Ég ætla líka að segja á þessum grundvelli að krafan er ósköp einfaldlega þessi: Að Ísland verði í hópi vestrænna ríkja í þessu fjármálalega tilliti, að við séum ekki hér með heimatilbúið kerfi sem varð til við allt að því neyðaraðstæður í fjármálum þegar aðstæður voru allar aðrar í samfélagi okkar og skipan efnahags- og atvinnulífs en nú er, í lok 8. áratugar liðinnar aldar. Það eru 40 ár síðan, held ég að megi segja. Ísland er náttúrlega gjörbreytt frá því sem það var fyrir 40 árum. En samt er það svo, frú forseti, að þegar þessi mál eru rædd er alltaf talað af hálfu þeirra sem ákafastir eru í því að verja þessa verðtryggingu, eins og hér sé árið 1979. Hvað eiga menn að gera? Peningarnir fuðra upp, þeir brenna, það er ekki neitt, allt í voða. Það er eins og hér séu engir fjárfestingarkostir til. Það er eins og hér séu engin fjármálafyrirtæki. Það er eins og hér hafi ekkert gerst.

Ég ætla líka að segja að við getum ekki tamið okkur það þegar við ræðum um þessi mál í þingsal að vera í samningum um hvort vísitalan eigi að vera svona eða hinsegin eða hvort þessi liður eigi að vera svona eða svona breyttur eða taki mið af þessu. Við þurfum að losna við þetta kerfi. (Gripið fram í.) Þetta kerfi er óboðlegt. Það er ekki boðlegt íslenskum almenningi, það er ekki boðlegt íslenskum fjölskyldum (Gripið fram í.) og það er ekki boðlegt að hér sé rekin stefna sem leiðir það af sér, eins og gerðist í hruninu, að í nafni fjármálastöðugleika mátti hver fjölskyldan á fætur annarri hverfa af heimilum sínum. Íslenskir foreldrar leiðandi börnin sér við hönd út af heimilunum vegna þess að annars væri ekki fjármálastöðugleiki í landinu. Það má aldrei endurtaka sig, frú forseti.