148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[15:39]
Horfa

Flm. (Þorsteinn B Sæmundsson) (M):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka kærlega fyrir þá umræðu sem hefur farið fram í dag.

Hún hefur verið mjög upplýsandi og hefur leitt í ljós að í raun eru hér margir innan dyra sammála því prinsippi sem við erum að leggja upp með í þessu frumvarpi, þ.e. að nauðsynlegt sé að breyta leikreglunum á lánamarkaði. Það er kannski aðalatriðið. Og þótt ekki væri nema til þess er framlagning frumvarpsins þess virði að fá umræðuna fram, að fá fram viljann sem hér býr. Hún er líka þess virði vegna þess að hún hefur leitt í ljós hverjir taka ekki til máls í umræðunni og ég sakna þess að fulltrúar Samfylkingarinnar, fulltrúar Vinstri grænna, fulltrúar Pírata skuli ekki hafa verið hér í salnum, utan einn ágætur hv. þingmaður Samfylkingarinnar sem hér situr nú. En spurningin er: Hvers vegna taka fulltrúar þessara flokka ekki máls? Hafa þeir ekki stefnu í málinu sem varðar 120 þúsund heimili á Íslandi? Þora þeir ekki að gera hana uppskáa? Ég get ekki svarað þeirri spurningu. Það verða menn að gera sjálfir.

Það er líka athyglisvert að þátttaka Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í umræðunni felst í nokkrum andsvörum, sem eru góðra gjalda verð. En hvar er stefna þessara flokka? Því hefur verið haldið fram að þingsályktunartillaga hv. þingmanna Framsóknarflokksins um að taka upp samræmda vísitölu sé á einhvern hátt sambærileg þessu máli. Með mikilli virðingu gengur sú þingsályktunartillaga út á það að hafist verði handa um að kanna hvort rétt sé að kanna hvort hér eigi að taka upp samræmda vísitölu. Við gerum þá tillögu, með mikilli virðingu fyrir henni, óþarfa með því að leggja fram þetta frumvarp.

Við teljum að ekki sé eftir neinu að bíða. Ég sagði í fyrri ræðu minni í dag: Biðin síðustu tólf mánuði er búin að kosta íslensk heimili, sem eru með lán af þessum toga, 50 milljarða kr. Það eru á milli 400 og 500 þús. kr. á hverja einustu þessara fjölskyldna í landinu, þessara heimila. Eftir hverju eigum við þá að bíða? Það er ekki eftir neinu að bíða.

Hins vegar er mjög athyglisvert, finnst mér, og það stendur upp úr þessari umræðu og hefur komið fram hér, að vaxtastig á Íslandi er náttúrlega allt of hátt. Það hafa heyrst raddir hér innan húss, í þessum sal, sem segja: Það er hægt að lækka vaxtastigið á Íslandi þó að við séum ekki að taka upp annan gjaldmiðil. Vegna hvers? Jú, það er hægt með því í fyrsta lagi að vanda hagstjórn og það er náttúrlega hægt með því að breyta um peningastefnu. Því hefur verið lýst af hálfu Seðlabankans í nokkur skipti að hugsanlega þurfi að breyta lögum. Ég segi bara eins og stendur í kvæði Hallgríms Péturssonar, með leyfi forseta: Kom þú sæll, þá þú vilt. Komi Seðlabankinn bara fram með þær lagabreytingar eða tillögur að þeim sem hann telur að gera þurfi til að breyta peningastefnunni ef það verður til þess að lækka vexti. Það skal ekki standa á þeim sem hér stendur og ég veit að það mun ekki standa á nokkrum þeim sem honum er nálægur að verða við ósk Seðlabankans í því efni. Aldeilis ekki. Við vorum tilbúnir í gær.

Það er líka annað að þessu leyti til hvað varðar kjör þeirra sem kaupa húsnæði á Íslandi, hvað þau eru ósambærileg og ekki samkeppnisfær við nágrannalöndin okkar. Það kom fram í ágætri ræðu í dag, væntanlega hjá hv. þm. Ólafi Ísleifssyni, sem hann flutti, aldeilis frábæra ræðu, að um 30 þúsund manns eru í útlöndum sem geta ekki hugsað sér að koma hingað heim, m.a. vegna þess að ekki er hægt fyrir það fólk að fara út á húsnæðismarkað vegna þess að það lætur ekki bjóða sér það sem ég lýsti hér í morgun, að borga lánið sitt fjórum sinnum og fara síðan á eftirlaun. Fólk lætur einfaldlega ekki bjóða sér það og lætur ekki bjóða sér að kaupa húsnæði, sérstaklega á þessu svæði hér, á uppsprengdu verði vegna þess að gistiheimili eru í annarri hverri íbúð. Hér ríkir lóðaskortur af mannavöldum sem pressar upp húsnæðisverð. Menn láta einfaldlega ekki bjóða sér það að kaupa hús undir þeim kringumstæðum, með raunvöxtum upp á 6% eða 7% þegar menn geta gengið að óverðtryggðum vöxtum upp á 2% og þaðan af lægra í nágrannalöndunum. Menn geta séð það fyrir sér. Og tali menn um það, ég tek dæmi af Danmörku af því að ég þekki þokkalega til þar. Þar eru vextir upp á kannski 2–2,5% óverðtryggðir á húsnæði, þeir eru ekkert sérstakir. Þeir bjóðast þeim sem greiða lítið út í húsum sínum. En það fólk getur líka reiknað út hvað það þarf að borga næstu 20 árin. Halda menn að það sé ekki verðbólga í Danmörku? Matvæli hækka í Danmörku alveg eins og annars staðar og hafandi verið árlegur gestur í Danmörku nokkrum sinnum á ári í 14, 15 ár veit maður að vísitala neysluverðs þar hækkar, en vextirnir á lánum til íbúðarkaupa eru samt 2%.

Líkt og ég kom inn á í andsvari við hv. þm. Þorstein Víglundsson áðan gerði ég óvísindalega könnun á því hvernig stýrivextir Seðlabanka Íslands væru í samanburði við stýrivexti seðlabanka Bretlands yfir 20 ára tímabil, þar sem verðbólgan í Bretlandi var á bilinu oft um 2% og upp í 5% eftir árum. Hjá okkur var hún 2,5% upp í 3–4% að undanteknum náttúrlega árunum 2008–2009 þegar við vorum að súpa seyðið af hruninu og kreppa kom hjá okkur, en að öðru leyti var verðbólga á Íslandi ekkert fádæma meiri en í Bretlandi. Seðlabanki Bretlands er með 0,5% stýrivexti og mér skilst að seðlabankastjóri Bretlands sé einnig í þeim hópi sem seðlabankastjóri Íslands segir að liggi á bæn og öfundist yfir því hvað stýrivextir séu háir á Íslandi. Sá hlýtur að vera búinn að fá í hnén. Þessir vextir eru búnir að vera óbreyttir í Bretlandi síðan 2006, ef ég man rétt, ef ekki lengur. Auðvitað er þetta samverkandi.

En hvað getum við gert? Jú, við getum tekið skref í þá átt að reyna að lagfæra þennan mun. Við getum tekið skref til að höggva skarð í brynju fjármálafyrirtækjanna. Við gerum það með því að breyta þessum rangláta vísitölugrunni með því að taka húsnæðisliðinn út úr þessari vísitölu. Húsnæðislið sem er búinn að hækka umfram vísitölu neysluverðs alla vega síðastliðin fimm ár, alla vega, og er í sjálfu sér búinn að vera í ósamræmi við vísitölu neysluverðs frá því 2003, í 15 ár. Og gapir, gjáin víkkar. Hún víkkar með hverju árinu. Lái fólki hver sem vill að leggja ekki í að fjárfesta í húsnæði á Íslandi við slíkar kringumstæður. En í því er hættan fólgin. Hún er fólgin í því að við erum ekki að fá til afnota, ef við getum orðað það svo, okkar bestu starfskrafta, fólk sem er að mennta sig vel. Það getur ekki sest hér að út af þessu, fyrir utan það að við erum með, eins og ég sagði áðan, 120 þúsund heimili sem eru fullhert af því hvern dag allt árið að hanga á húsunum sínum og borga af þeim miklu meira en þau þyrftu ef hér væru hlutir með eðlilegum hætti. Eins og ég sagði 400–500 þús. kr. á heimili bara síðustu tólf mánuði.

Bent hefur verið á hættuna af því að hugsanlega hækki vextir, þ.e. nafnvextir, eða vaxtaþátturinn ef við breytum vísitölugrunninum. Ég segi: Menn sýna þá þann kjark að gera það. Við höfum séð Austurvöll fyllast af minna tilefni. Kannski rís almenningur loksins upp vegna þessa okurs með því að fá kjark, með því að vita að hér inni eru til menn, alla vega í sumum flokkum, sem hugsa til þessa fólks, sem vilja raunverulega að gera eitthvað til að lagfæra þetta ástand. Þeir sem leggja ekki í að gera það verða náttúrlega að svara fyrir sig og útskýra það fyrir 120 þúsund heimilum á Íslandi hvers vegna þeir vilja ekki taka á því með okkur hinum, ef þeir vilja ekki gera það. En ég vil náttúrlega trúa því að allir skynsamir menn taki þessu máli fagnandi eins og ég sagði í morgun. Þess vegna efast ég ekkert um það. En það kann vel að vera að í meðförum nefndarinnar verði málið betur undirbyggt, ég fagna því ef það verður skýrt betur ef menn hafa talað óskýrt. Fínt. Það verður bara að betra. Við þurfum bara að koma þessu fram.

Eins og ástandið er núna, og hefur verið, er óþolandi. Það er hins vegar rétt sem hér hefur líka komið fram í máli nokkurra þingmanna og gladdi mig mjög að nauðsyn er á uppstokkun fjármálakerfisins. Það kom mjög vel fram í máli nafna míns Víglundssonar, hv. þingmanns. Og ég segi við hann: Velkominn í hópinn. Miðflokksmenn eru með mjög skýra stefnu í þessum málum, sem hægt er að sjá bæði á heimasíðu flokksins og annars staðar, hvernig við ætlum að endurskipuleggja fjármálakerfið þannig að meiri samkeppni verði á bankamarkaði. Stefnan er mjög skýr. Tillögurnar eru mjög skýrar. Þær eru eiginlega settar niður í smáatriðum þannig að menn þurfi ekki að ganga að því gruflandi hvernig hægt sé að gera þetta. Þetta er fyllilega framkvæmanlegt. Vilji er allt sem þarf, svo ég vitni aftur í skáld.

Ég er bjartsýnni núna að aflokinni þessari umræðu en ég var áður þrátt fyrir að hér heyrist ekki raddir þeirra stjórnmálaflokka sem kenna sig við alþýðuskap og verkalýðsást, þá fagna ég samt þessari umræðu.

Ég brýni mína gömlu félaga í öðrum flokki, Framsóknarflokknum. Ég brýni þá til að standa með málinu vegna þess að það er í sjálfu sér náskylt þeim sjónarmiðum sem sá flokkur hefur haldið fram. Og nú reynir á hvort menn meini og hafi meint það sem þeir sögðu þegar þeir segjast hafa viljað taka skref til að taka vísitöluna út úr húsnæðislánum. Ég myndi fagna því gríðarlega. Satt að segja reikna ég með að þeir ágætu menn komi til liðs við þetta mál.

Þegar öllu er á botninn hvolft held ég að á Alþingi Íslendinga sé rífur meiri hluti fyrir því réttlætismáli að breyta því ranglæti sem viðgengst í lánamálum. Ég vona að málið verði kannski, eins og ég sagði áðan, fyrsta skrefið í 1.000 mílna ferð. Ég vona að þetta sé fyrsta skrefið í þá átt að rjúfa brynju fjármálafyrirtækja. Vopnin eru til, það þarf bara að beita þeim, við þurfum að beita þeim. — Ég fagna því að hér stígur í salinn fulltrúi Samfylkingarinnar og myndi fagna því að heyra hug hennar til málsins, sem varðar 120 þúsund heimili í landinu. En enn er möguleiki. Ég held að þjóðina þyrsti mjög að heyra afstöðu þessa flokks, jafnaðarmannaflokks Íslands einhvern tíma kallaður, til þessa máls af því að þetta er jafnaðarmál.

Frú forseti. Ég þakka enn og aftur fyrir þessa umræðu. Hún hefur verið góð og innihaldsrík og hún er búin að vera málefnaleg.