vextir og verðtrygging.
Hæstv. forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni að umræðan um þetta mál sem við ræðum hér er búin að vera býsna athyglisverð og fín. Hér hefur verið komið inn á vexti, lánskjör, verðtryggingu, verðþróun og þátt krónunnar og svo það sem kannski snýr mest af þessu máli, vísitölur, húsnæðisliðinn í vísitölu neysluverðs. Ég kem hér upp, virðulegi forseti, vegna þess að hv. framsögumaður, fyrsti flutningsmaður málsins sem hér var síðast í ræðu, Þorsteinn Sæmundsson, minntist á mál sem er þessu tengt og er tillaga til þingsályktunar um upptöku samræmdrar vísitölu neysluverðs. Það er því augljóst mál að í grunninn eru þessir flokkar sammála í þessu máli. Ég vildi koma hér og árétta að þetta er jafnframt í stjórnarsáttmála hæstv. ríkisstjórnar þannig að það eru býsna margir sem vilja skoða þetta mál.
Ef eitthvað er þá hefur sú umræða sem í dag hefur farið fram, og ég tek undir með öllum sem hér hafa talað um að hún hafi verið mjög góð, leitt það í ljós að við þurfum að gera þetta faglega. Í þingsályktunartillögunni sem hv. þingmaður vísar í er lagt til að áhrif breytinga á vísitölu eins og hún er reiknuð verði metin á launakjör, lánakjör, stöðu verðtryggðra lána og á það hvernig við eigum að taka ákvarðanir um vexti, þ.e. peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.