vextir og verðtrygging.
Frú forseti. Við höfum hér afbragðsstofnun sem mælir verðbreytingar á Íslandi samkvæmt einhverjum sex eða sjö vísitölum í hverjum mánuði eins og hefur komið fram í þessari umræðu, Hagstofu Íslands. Hún mun að sjálfsögðu halda áfram að mæla verðbreytingar á Íslandi samkvæmt neysluverði eingöngu o.s.frv. Hún heldur áfram að mæla þessar sex, sjö vísitölur í hverjum einasta mánuði og fylgjast með hvernig þróunin er á hverjum tíma, en það erum við sem þurfum að taka af skarið. Það gera embættismenn í Hagstofu Íslands ekki, með mikilli virðingu fyrir þeim og þeirra starfi, enda er það ekki þeirra hlutverk. Það er okkar hlutverk að gera það. Það er bara þannig að í stjórnmálum þurfa menn að taka ákvarðanir, helst hratt. Þess vegna þurfum við að bregðast við núna. Það er ekki eftir neinu að bíða.