vextir og verðtrygging.
Hæstv. forseti. Ég vildi koma hingað upp til að þakka fyrir þá umræðu sem skapast hefur út frá því frumvarpi sem hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson leggur fram.
Hjá mér vaknar spurning: Er þetta ekki akkúrat partur af svarinu við því af hverju þjóðin er ósátt og reið og þar með hefur virðing Alþingis ekki risið sem skyldi? Að kerfinu er í raun og veru svolítið stillt þannig upp að góðæri ríki í landinu. Ríkissjóður stendur vel og þjóðfélagið er rekið á ágætisfleti. En það er fólkið í landinu, íbúðareigendur, húseigendur og fjölskyldur, sem borgar brúsann, stærsta partinn. Það hefur komið fram í ræðum í dag.
Hv. þm. Bergþór Ólason benti á landsbyggðina og köldu svæðin. Hv. þm. Ólafur Ísleifsson benti á hvað þetta peningastefnukerfi hefði skotið djúpum og föstum rótum. Þá kemur sú spurning upp: Er það ekki partur af þjóðarsáttinni eða ósáttinni og því hvað þjóðin er orðin dofin fyrir þessu að hana vantar kjark til að fara í þann róður að breyta kerfinu svo sanngirni sé gætt gagnvart okkar smæstu bræðrum og systrum úti í samfélaginu? Þetta er kannski svolítið stór spurning en ég hendi henni hérna fram.