148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[16:07]
Horfa

Flm. (Þorsteinn B Sæmundsson) (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er hárrétt sem hv. þingmaður sagði áðan að það kerfi sem við búum við núna, þessi verðtrygging á lánum, er ofvaxið skilningi flestra fórnarlamba þess, ef ég get orðað það þannig, þ.e. þeim sem hafa svona lán. Ég veit svo sem ekki um auðvelda leið til þess að skýra út fyrir fólki sem býr við þessi lánakjör hvernig standi á því að ef frostnótt verður í Suður-Ameríku þannig að kaffiuppskeran bregst og verð á kaffi hækkar á Íslandi, þá hækki lán þess. Ég veit ekki hvernig við eigum að skýra það fyrir fólki.

Ég veit heldur ekki hvernig við eigum að skýra það fyrir fólki að þegar íslenska ríkisstjórnin ákveður í fljótræði rétt fyrir jólin að hækka áfengisgjald og önnur gjöld um 22,2%, sem er einhver reiknuð tala sem einhverjir menn úti í bæ hafa fundið út, þá hækka öll lán í landinu. Ég veit ekki hvernig maður á að útskýra það fyrir fólki sem er að berjast fyrir sjálfu sér í dagsins önn. Það er einmitt þess vegna sem við þurfum að að vinda ofan af þessu í eitt skipti fyrir öll. Þetta er fyrsta skrefið í þá átt.