vextir og verðtrygging.
Frú forseti. Ég vil nú fyrir býsna margt þakka fyrir þessa umræðu. Ég tel hana mjög gagnlega og þarfa og ég tel að hér sé um að ræða mál sem þarf að ræða miklu meira á vettvangi Alþingis. Það eru ekki alltaf jólin og það er ekki alltaf þannig að svona mikið logn sé yfir mannlífinu eins og núna. Við skulum nota þetta góða tækifæri til að ræða þetta mál og við skulum koma að því aftur síðar.
Ég vil nefna að það eru fleiri flokkar en Miðflokkurinn sem leggja mjög mikið upp úr þessu máli, til dæmis Flokkur fólksins. Þetta er eitt af okkar stóru málum. En við skulum átta okkur á því að við eigum í höggi við óvígan her. Fjármálaöflin eru svo sterk að það er alveg ljóst að sumir stjórnmálaflokkar — ég heyri það nú að flutningsmaður er að velta fyrir sér afstöðu þeirra og skýringum á fjarveru þeirra.
Við þekkjum náttúrlega þessa frasa: Flokkurinn leggur áherslu á að draga úr vægi verðtryggingar. Það þýðir að flokkurinn vill ekki gera neitt. Svo eru til flokkar sem segja: Ja, hér verður auðvitað að koma önnur mynt. Það þýðir það þarf ganga í Evrópusambandið, með öllu sem því fylgir og ekki kemur til greina að ræða afnám þessa fyrirkomulags fyrr en það er gert. Það er eitthvað sem mælist kannski í áratugum.
Með þessari tillögu er gengið hreint til verks og sótt beint fram. Ég mun í mínu seinna andsvari lýsa annarri aðferð sem ég hef kosið að nota í þessu máli, sem er tangarsókn að hætti Ludendorffs hershöfðingja. Ég mun nýta tíma minn á eftir í því skyni.