148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[16:10]
Horfa

Flm. (Þorsteinn B Sæmundsson) (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta andsvar og ég vil byrja á því að biðja hann afsökunar á því að hafa ekki tekið það sérstaklega fram í seinni ræðu minni í þessari umræðu hvernig Flokkur fólksins hefur stutt þetta frumvarp, því að það hafa þau gert með ráðum og dáð, og ég er þakklátur og stoltur yfir því. Vissulega munar um þeirra liðveislu í þessu máli.

Það er reyndar líka annað sem fyllir mig dálítilli bjartsýni núna. Það er að þetta mál og þessi mál skuli yfirleitt vera komin almennilega á dagskrá hér á þinginu því að rétt eins og hv. þingmaður sagði hafa menn oft á tíðum komist upp með svona ódýra frasa, einhverja 17. júní frasa í þessu máli, en við þurfum ekki á því að halda núna. Ég sagði það og er búinn að segja það nokkrum sinnum núna í þessari umræðu: Það er búið að tala um þetta mál í fimm, sex ár. Það er búið að hugsa þetta mál miklu lengur. Það eru allt aðrar aðstæður uppi en þegar þessu var upphaflega hleypt af stað.

Maður finnur náttúrlega á andstöðunni það sem ég nefndi í ræðu fyrr í dag að það er eins og allt fjármálakerfið sé farið að stóla á að þetta kerfi verði áfram við lýði, alveg uppi í Seðlabanka Íslands. Bankastofnanirnar, lífeyrissjóðirnir, það stóla allir á að þeir geti í sjálfu sér gert nokkurn veginn það sem þeim dettur í hug og sent reikninginn til okkar inn um lúguna í hverjum einasta mánuði og að heimili landsins borgi brúsann þegjandi og hljóðalaust. Ég sagði líka áðan að lífeyrissjóðirnir myndu lúta aðeins öðruvísi lögmálum innan tíðar og ég get komið betur inn á það í seinna andsvari mínu hér á eftir.