vextir og verðtrygging.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta. Það er næsta víst að einhverjir fulltrúar Miðflokksins komi til liðs við hann og hans félaga í sérstakri umræðu um verðtryggingu. Ég ítreka það sem ég sagði áðan, ég þakka Flokki fólksins fyrir liðveisluna í þessu máli.
Ég fagna líka þeim fyrirspurnum sem hv. þingmaður hefur lagt fram. Ég heyri að þær eru innlegg í þetta mál og vissulega hluti af tangarsókn. Ekki veitir af.
Óvígur her, segir hv. þingmaður. Ég vil líka líta á þetta sem marghöfða þurs. Hér í denn var það þannig að þegar riddarar hjuggu einn haus af spratt jafnan upp annar þannig að menn þurftu að vera handfljótir. Við þurfum að vera handfljótir í þessari baráttu og þess vegna er um að gera að taka skrefið djarft og öflugt en ekki læðast eins og köttur í kringum heitan graut.