rannsókn kjörbréfs.
Borist hefur bréf frá Guðjóni S. Brjánssyni, 6. þm. Norðvest., um að hann geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því er óskað eftir að í dag taki Jónína Björg Magnúsdóttir sæti á Alþingi en hún er 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu. 1. varamaður á lista í kjördæminu hefur boðað forföll.
Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Jónínu Björgu Magnúsdóttur. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kjörbréfið.