148. löggjafarþing — 41. fundur,  20. mars 2018.

störf þingsins.

[13:45]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Ég ætla að ræða hér heilbrigðisþjónustu, stefnumörkun og gildi forvarna. Óhjákvæmilegt er annað en að setja það í samhengi við lýðfræðilega breyttar forsendur, eða þróun skulum við öllu heldur segja, hækkandi hlutfall aldraðra og hækkandi meðalaldur. Mannfjöldaspár benda til þess að innan 40 ára verði fjórðungur þjóðarinnar eldri en 65 ára og þá verða augljóslega færri vinnandi hendur á bak við þá sem þurfa viðeigandi þjónustu og umönnun.

Í þessu felast miklar áskoranir og við erum meðvituð um hversu mikilvægt og aðkallandi er að vinna að stefnumörkun í heilbrigðisþjónustu er varðar alla þjónustu og fjármögnun. Forvarnir ættu að skipa mikilvægan sess í slíkri stefnumótun.

Í stjórnarsáttmála hæstv. ríkisstjórnar er lögð áhersla á alla þessa þætti og segir þar að huga verði að nýsköpun í heilbrigðismálum, hrinda geðheilbrigðisáætlun í framkvæmd, ráðast í uppbyggingu hjúkrunarheimila og styrkja rekstrargrundvöll þeirra. Það kom skýrt fram á nýafstöðnu málþingi um fjármálaumhverfi heilbrigðisþjónustunnar að styrkja þarf verulega rekstrargrundvöll hjúkrunarheimila þannig að viðeigandi umönnun og þjónusta verði tryggð. Hæstv. ráðherra heilbrigðismála er meðvitaður um að úrbóta er þörf á þessu sviði. Ég á von á því að þess sjái stað í ríkisfjármálaáætlun sem birtist innan skamms.

Hæstv. ríkisstjórn leggur jafnframt áherslu á forvarnir og lýðheilsu. Við eigum að mínu mati að beina sjónum okkar í auknum mæli að þeim þáttum, það er óhjákvæmilegt, breitt yfir sviðið í menntakerfinu, í heilbrigðiskerfinu; með auknum stuðningi við íþrótta- og æskulýðsstarf barna og unglinga og í öldrunarstarfi. Fjölmargar rannsóknir staðfesta að ná má miklum árangri í forvörnum í gegnum heilbrigt íþrótta- og æskulýðsstarf barna og unglinga, en ekki síður hreyfingu þeirra sem eldri eru.