lögheimili og aðsetur.
Virðulegi forseti. Jú, ég tel svo vera. Mér finnst reyndar löggjafanum bera skylda til ýmislegs sem hann tekur sér samt ekki fyrir hendur, ég ætla ekki að byrja á að þylja upp þann langa lista. Það fyrirkomulag sem við erum með í þessu máli eins og í svo mörgum öðrum hefur alltaf þetta yfirbragð tilætlunarsemi; tilætlunarsemi gagnvart því hvernig fólk almennt hagar lífi sínu. Auðvitað er það ekki af illum hug ríkisins eða löggjafans, það er bara vegna þess að þegar við ætlum að gera eitthvað gott, eins og að tryggja fólki réttindi gagnvart sveitarfélagi sínu, þurfum við að byggja það á lögum. Lög eru þannig að þau eru skrifuð niður og þegar maður skrifar eitthvað niður verður því ekki breytt nema löggjafinn taki sig til og breyti því með fyrirvara um reglugerðarheimildir og því um líkt. En óháð því þá erum við alltaf að setja fólk í box, alltaf þegar við fjöllum um réttindi og svoleiðis, óhjákvæmilega. Það er ekki af illum hug heldur er það eðli þess að vera með kerfi sem á að virka fyrir fólk sem er misjafnt, sem er afskaplega fjölbreytt. Þetta er svona sérstaklega með útlendingamál. Þetta er svona með fangamál. Þetta er svona með allt sem varðar hagsmuni, réttindi og skyldur fólks.
Mér finnst hins vegar alltaf að löggjafinn hafi hvað mestar skyldur hvað það varðar að tryggja réttindi borgaranna gagnvart sjálfum sér, þ.e. að löggjafinn sé ekki ávallt að nota einkahagsmuni fólks og mælikvarða úr einkalífi fólks til að reyna að byggja þessi kerfi á. Stundum þarf þess. Það getur vel verið að þess þurfi oft, en ekki alltaf. Ég held að þess þurfi ekki jafn oft og tilfellið er núna. Eitt sem ég tel að við þurfum ekki — tel, ég er ekki 100% viss — er að byggja þessi réttindi barna á ákveðnu heimilisfangi þegar forsjá er sameiginleg. Ég held að þetta sé sennilega stærsta vandamálið sem foreldrar eigi við þegar kemur (Forseti hringir.) að skiptri búsetu, þ.e. að díla við ríkið, ekki við hvort annað eða skipta búsetu sem fyrirbæri.