störf þingsins.
Virðulegi forseti. Síðastliðið vor hafði hv. þingmaður Norðvest., Teitur Björn Einarsson, frumkvæði að því að hefja hér umræðu um stöðu sjávarútvegs í því kjördæmi og á landinu öllu. Tilefnið var ærið, verkföll, lækkandi verð á fiski, staða gengismála og sú staðreynd að veiðigjöld voru að hækka mikið. Tekjur ríkissjóðs af veiðigjöldum hækka gríðarlega á milli ára, fara úr 5,5 milljörðum í ríflega 10 milljarða kr. Álagning og fjárhæð veiðigjalda sem nú er verið að greiða er á framlegð og afkomu sem ekki er í neinu samræmi við þann veruleika sem er í dag.
Niðurstaða þeirrar umræðu sem hv. þm. Teitur Björn Einarsson hóf var sú að fyrrverandi formaður atvinnuveganefndar þingsins, hv. þm. Páll Magnússon, náði samkomulagi um það við þáverandi sjávarútvegsráðherra að gera greiningu á afkomu útgerðarinnar. Helstu niðurstöður þeirrar greiningar eru eftirfarandi:
Tekjur í sjávarútvegi drógust saman um 25 milljarða kr. eða um 9% á milli áranna 2015 og 2016. Tekjulækkun var hlutfallslega mest hjá sjávarútvegsfyrirtækjum með mestu aflaheimildirnar. EBITDA sjávarútvegsfyrirtækja lækkaði um 22% á milli áranna 2015 og 2016. Skuldastaða greinarinnar í heild þróaðist með jákvæðum hætti árið 2016 að því leyti að heildarskuldir lækkuðu og eiginfjárhlutfall hækkaði. Greiðslugeta versnaði hins vegar þar sem skuldir sem hlutfall af EBITDA lækkuðu.
Með hliðsjón af hreyfingu helstu hagstærða og útflutningsverðmæta sjávarafurða eru allar líkur á að afkoma versni nokkuð á árinu 2017. Þetta má meðal annars rekja til óhagstæðrar þróunar ytri hagstærða, verðlag sjávarafurða hefur lækkað verulega í íslenskum krónum og launavísitala hækkað töluvert. Deloitte telur að EBITDA sjávarútvegs geti hafa lækkað árið 2017 um 20–37% og nemi þá á bilinu 37–45 milljörðum kr.
Virðulegi forseti. Útgerðarfyrirtæki í Norðvesturkjördæmi og á landinu öllu eru misjöfn að stærð og gerð. Ég segi: Það er ekki í boði að taka ekki alvarlega umræðu um þetta þegar þingið kemur aftur saman eftir páska. Það er ekki í boði að gera ekki neitt, annars getur horft til mjög alvarlegrar stöðu.