148. löggjafarþing — 42. fundur,  21. mars 2018.

störf þingsins.

[15:17]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Virðulegur forseti. Mig langar til að gera að umtalsefni undir þessum lið um störf þingsins, störf þingsins. Nánar tiltekið störf þingsins í dag. Og kannski líka í gær. Við erum með á dagskránni fyrir framan okkur mál nr. 3, sem er kosningar til sveitarstjórna, kosningaaldur. Nú háttaði svo til í gær að vegna mikillar og langrar umræðu um fjármálastefnu komst það mál ekki á dagskrá. Því miður riðlaðist dagskráin í gær vegna töluverðrar umræðu um fundarstjórn forseta, sem ég held að hefði mátt koma í veg fyrir, t.d. ef hæstv. ráðherra hefði nú bara fundið það hjá sjálfum sér að vera í salnum við umræðuna eða ef hv. formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar hefðu óskað eftir því fyrir fram. Ég held að við hefðum öll saman getað komið í veg fyrir að dagskráin tefðist svona.

Og nú tökum við aftur til við umræðu um fjármálastefnu á eftir. Mig langar að brýna okkur öll hér inni til dáða þegar kemur að máli nr. 3. Nú fer að styttast í annan endann á því hvort við náum að gera þessar breytingar á lögum um kosningaaldur fyrir næstu kosningar eða ekki, þ.e. að lækka hann niður í 16 ár.

Um 9.000 ungmenni fá kosningarrétt fyrir sveitarstjórnarkosningarnar verði þetta frumvarp að lögum. Ég hef fulla trú á okkur hér inni að þegar við leggjum okkur virkilega fram og göngum einbeitt til verka og vöndum okkur, getum við sýnt að við getum afgreitt mál hér á sæmilegum hraða. Ég vona svo innilega að okkur takist að afgreiða þetta mál. Það kemur þá bara í ljós hvort meiri hluti er fyrir því eða ekki. Fyrir liggja fjögur nefndarálit sem eru með mjög fjölbreyttum og ítarlegum sjónarmiðum. Ég tel okkur því ekkert að vanbúnaði að klára þetta mál og vonandi verður það að lögum (Forseti hringir.) áður en þingið fer í páskafrí svo þau 9.000 ungmenni, sem bíða eftir að fá að vita hvort þau fái að kjósa, fái svar.