fjármálastefna 2018--2022.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það þarf kannski ekki mikinn lærdóm eða vísdóm til að sjá að þegar svo umtalsverðar breytingar verða á þeim spám sem liggja fyrir og við endurskoðun á þeim tölum sem þegar liggja fyrir að slíkt hlyti að öllu samanlögðu og að öðru jöfnu að kalla á að stefnan væri endurskoðuð í því ljósi.
Ég vil nota þetta tækifæri og vekja athygli á því sem segir af hálfu fjármálaráðs um samspil spágerðar og stefnu þar sem fram kemur að forsendurnar að baki þjóðhagsspánni sem fjármálastefnan byggir á eru ekki í samræmi við þær upplýsingar sem nú eru til staðar og þá stefnumörkun sem liggur fyrir. Er vikið að nokkrum þáttum í þessum efnum. Þar á meðal þáttum sem lúta að samneyslu og áformum um lækkun á almennu þrepi virðisaukaskatts. Þetta er rakið á bls. 18 í áliti fjármálaráðs. Þetta atriði í áliti fjármálaráðs, ásamt þeim atriðum sem hv. þm. Björn Leví Gunnarsson bendir á, ætti auðvitað að leiða til þess að fjármálaáætlunin væri ósköp einfaldlega endurskoðuð í ljósi þessara upplýsinga.