148. löggjafarþing — 42. fundur,  21. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[16:07]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er einhvers vísari. En það hangir náttúrlega saman, þ.e. fjármálaáætlun og fjármálastefna. Ég heyrði í ræðu í gær, man ekki hvaða þingmaður flutti hana, en hann talaði um að ef fjármálastefnan væri ekki góð, eins og hann tók fram, væri hætta á því að Seðlabankinn hækkaði stýrivexti. Hefur þingmaðurinn einhverja skoðun á því? Eins það að ef stýrivextir eru háir hækkar annað vaxtastig náttúrlega á lánum og öðru slíku. Ég spyr þingmanninn að þessu.