148. löggjafarþing — 42. fundur,  21. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[16:09]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er auðvitað athyglisvert og mjög merkilegt og áhugavert að tengja umræðu um fjármálastefnu við stefnuna í peningamálum eins og það heitir. Þarna verða áherslur auðvitað að vera samrýmanlegar.

Mér hefur ekki sýnst annað en að Seðlabankinn væri giska fundvís á tilefni til að ýmist hækka vexti eða halda þeim óbreyttum í tiltölulega mjög háu stigi. Þetta vekur líka upp það sem er nú mjög til umfjöllunar hér í ýmsum nefndum, til að mynda í efnahags- og viðskiptanefnd og fjárlaganefnd, að haldið er hérna uppi allrammgerðum innflæðishöftum, sem ég skal ekki tíunda í neinu löngu máli, en sem flestir virðast samdóma um að stuðli mjög að hærra vaxtastigi og þar með meiri vaxtakostnaði ríkissjóðs, fyrirtækja og heimila en ella væri.