148. löggjafarþing — 42. fundur,  21. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[16:10]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hv. þingmaður er á nefndaráliti 2. minni hluta ásamt hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni og Birgi Þórarinssyni. Þar er fjallað stuttlega um gagnsæisvinkilinn sem er vinkill sem í tillögunni sjálfri er fjallað mjög lítið um í raun og veru. Eins og kemur fram í nefndaráliti 2. minni hluta þá er orðið notað einungis þrisvar sinnum í tillögunni sjálfri og þar af einu sinni í upptalningu á grunngildunum fimm sem talað er um. Það eru til tvær tegundir af gagnsæi, það er annars vegar sú tegund af gagnsæi þar sem upplýsingar eru veittar og tölum er skilað, maður hefur aðgang að upplýsingum. Hin tegundin af gagnsæi er þar sem ferlar, kerfi, útreikningar og meðhöndlun gagnanna er það skýr að það er auðvelt að átta sig á hvað gögnin þýða og nota þau til þess að draga ályktanir eða komast að einhverju öðru.

Mér hefur oft þótt yfirvöld í fyrsta lagi klappa sér aðeins of mikið á bakið þegar þau veita upplýsingar, en sér í lagi finnst mér að þau láti oft eins og hlutirnir séu rosalega einfaldir og augljósir þegar svo er einfaldlega ekki. Ég hugsa að allir kannist við það að fara í einhverja ríkisstofnun og óska eftir einhverjum upplýsingum eða reyna að komast að einhverju og viðmót stofnunarinnar er eins og maður sé fáviti vegna þess að maður er ekki búinn að vinna þar í 20 ár eða hvað það er. Það er þreytandi viðhorf sem finnst víða í stjórnsýslunni. Það er líka tilfinningin sem ég fæ í mörgum svona málum.

Mig langaði að spyrja hv. þingmann vegna þess að hann er vanari því að fara með svona fjárhagstölugögn en ég, hvort hann telji gagnsæið nægt í þessu hvað varðar síðari tegundina af því, ekki hvaða tölur endilega séu birtar, heldur hversu gagnlegar (Forseti hringir.) þær eru með hliðsjón af því hvernig maður á að nýta þær.